Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Jón Viðar er mjög ánægður með Vitjanir: „Frammistaða þeirra heilt á litið til fyrirmyndar“

Einn þekktasti list­gagnrýnandi landsins, Jón Viðar Jónsson hefur fylgst með íslensku sjónvarps­þáttunum Vitjanir á Rúv undan­farnar vikur líkt og fjölmargir Íslendingar. Og hvernig ætli Jóni Viðari líki við þættina?

Þættirnir fjalla um „bráða­lækninn Kristínu sem flytur með unglings­dóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávar­þorp eftir fram­hjáhald eigin­mannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarð­bundin, kemt fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar,“ líkt og stendur á vef Rúv.

Bakvið þættina er frábært kvenna­teymi en Eva Sigurðar­dóttir er leik­stjóri og þær Kolbrún Anna Björns­dóttir og Vala Þórs­dóttir skrifa handritið, en bæði Kolbrún Anna og Vala leika einnig í þáttunum.

Jón Viðar, sem vekur venjulega athygli fyrir hvassar og neikvæða gagnrýni kom eflaust mörgum á óvart með færslu sinni en þar lofsamar hann þættina. Byrjar hann að tala um íslenska þátta­gerðafólk sem hefur verið að gera það gott undan­farið og sótt innblástur á lands­byggðina. Nefnir hann til að mynda Svörtu sanda hans Baldvins Z sem sýndir voru á Stöð tvö í vetur en honum fannst þeir góðir.

„Nú má hver dæma fyrir sig, en ég, fyrir mína parta, hef haft langmest gaman af Vitjunum. Ég þekki því miður ekki til þess kvenna­teymis sem stendur að baki þeim, en það leynir sér ekki að þetta er alvöru­fólk sem bæði kann að segja sögu í þessu listformi, kann til verka í svið­setningu, mynd­vinnslu oþh og vandar sig í hvívetna. Hefur þar á ofan ágætan húmor. Formúlur og fyrir­myndir eru vissulega margar kunnar, en hvað gerir það til ef heildar­myndin er þokkalega trúverðug og leikurunum tekst að blása lífi í persónurnar? Þeir eru hér mjög vel valdir, sýnist mér og frammistaða þeirra heilt á litið til fyrir­myndar.“

Jón Viðar er hrifinn af leikurunum í þáttunum og nefnir þá Jóhann Jóhannsson, sem leikur lögregluna Ragnar í þáttunum og nefnir einnig Kolbrúnu Önnu.

„Einhverjir verulega betri en aðrir? Eiginlega ekki – og þó. Jói Jóhannson (hét hann ekki einhverntíma Jóhann G. Jóhannsson?) brillerar sem Raggi lögga, hann hefur aldrei fyrr sýnt slíka takta, en ég hef ugglaust ekki séð allt sem hann hefur gert). Virðist í fyrstu heldur vonlaus lúði, fastur í lífi sem hann er alls ekki sáttur við, en sækir svo í sig veðrið þegar á líður, enda tólf­sporamaður undir traustri hand­leiðslu Þrastar Leós sem er auðsæilega pott­þéttur AA trúnaðar­maður. Hann, ásamt Kolbrúnu Önnu Björns­dóttur (+ fjöl­skyldu) eiga einna mestan þátt í að lyfta leiknum þegar fram í sækir uns hann nær að verða beinlínis áhrifa­mikill í hörmungum sjötta og sjöunda þáttar.“

Og Jón Viðar nefnir fleiri leikara sem honum þykir standa upp úr annars frábærum leikara­hópi.

„En fleiri gera það gott. Vala Þórs­dóttir er dásamlega fyndin sem grasa­læknirinn sem lifir að hálfu leyti í álfheimum – hver þekkir ekki svona eilífðar­hippa og kuklara? Eða hina sjúklega stjórn­sömu systur sem Steinunn Ólína teiknar upp af fullkomnu öryggi, sama öryggi og hún sýndi í hlutverki hinnar alkóhóliseruðu móður í Svörtum söndum. Katla Njáls­dóttir er líka mjög góð sem dóttirin og ekki verra að sjá rosknar stór­leikkonur blómstra eins og þær gera Helga Jóns­dóttir og Ragn­heiður Steindórs­dóttir. Er annars nokkuð fallegra í leik­listinni en rosknir leikarar og jafnvel aldraðir sem allt í einu fá að skína? Sara Dögg gerir Kristínu líka góð skil, en persónan nær einhvern veginn ekki að fanga áhuga manns eða samúð, eins þótt hún sé í óttalegri tilvistar­krísu og viti varla hvaða sambandi hún er að fara úr eða koma í. Getur annars hugsast að persónan eigi sér fyrirmynd í bandarískri sápu á Netflix, Virgin River, sem fjallar einmitt um hjúkrunar­konu í svipaðri aðstöðu? Ekki svo að skilja, konan er ekkert verri fyrir það, það er bara svo erfitt að þola til lengdar fólk sem aldrei getur ákveðið sig (sbr Hamlet sem ég hef aldrei fílað almennilega, ekki frekar en TS Eliot og fleiri góðir menn).“

Að lokum veltir Jón Viðar sér fyrir enda­lokunum en loka­þátturinn er á morgun og segir kvenna­teymið sem stendur að þáttunum geti fyllilega flokkað sér í hóp með „stór­veldum“ sem fyrir eru í bransanum.

„Það verður forvitnilegt að sjá hvernig Eva Sigurðar­dóttir og félagar landa dramanu í síðasta þætti. Og mér kæmi mjög á óvart yrði þar ekki opnað á amk aðra röð í viðbót. Þó víða sé komið við er naumast nokkur skortur á nýtilegum söguefnum á Hólma­firði eða nágranna­byggðum (ég sé að fólk nefnir hér eldgos eða einhverjar náttúru­hamfarir, það gæti eflaust bjargað einni seríu í bland við annað). Aðal­atriðið er að þetta kvenna­teymi stillir sér nú með sóma upp við hliðina á þeim „stór­veldum“ sem fyrir eru í bransanum og vekur vonir um enn meiri grósku í listinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt