Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Leifur Garðars ráðinn sem deildarstjóri unglingadeildar Stapaskóla: „Fólk var varla að trúa þessu“

Mynd / Skjáskot RÚV.
Mynd / Skjáskot RÚV.

Leifur Garðarsson, sem rekinn var sem körfu­knattleiks­dómari fyrir að senda óviðeigandi skilaboð til ungs kvenkyns körfu­knattleik­mann hefur nú verið ráðinn sem deildar­stjóri unglinga­deildar Stapa­skóla í Reykja­nesbæ.

Sjá einnig: Leifur Garðarsson hættir sem skóla­stjóri eftir óviðeigandi samskipti við konu

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs hefur Gróa Axels­dóttir ráðið Leif sem deildar­stjóra unglinga­deildar Stapa­skóla. Á hann að hefja störf 1. ágúst næst­komandi. Leifur starfaði áður sem knattspyrnu­þjálfari, körfu­knattleiks­dómari og skóla­stjóri Áslands­skóla.

Á bingó­kvöldi körfu­knattleiks­liðar Njarðvíkur í gærkvöldi kvisaðist út sá orðrómur að Leifur hefði verið ráðinn og samkvæmt heimildum Mannlífs var fólk í ákveðnu sjokki enda Leifur afar umdeildur. „Það varð eiginlega allt brjálað, þetta gekk mann af manni þarna í bingóinu og fólk var varla að trúa þessu,“ sagði heimildar­maður Mannlífs. Segir hann ennfremur að foreldrar við skólann trúi honum ekki fyrr en hann sýni þeim skjáskot af samskiptum við aðila sem kemur að málinu, sem stað­festir ráðninguna. Þá hefur Mannlíf eftir áreiðanlegum heimildum að foreldrar barna í skólanum séu búnir að vera ræða saman og muni ákveða það á fundi á mánudaginn, hvort þau muni tilkynni skóla­stjórnendum skólans það að ef að Leifur Garðarsson verði ráðinn til starfa við skólann, taki þau börn sín úr skólanum.

Árið 2011 var Leifur rekinn sem þjálfari knattspyrnu­liðs Víkings eftir að hann sendi fyrir slysni leik­mönnum liðsins Excel skjal þar sem hann útlistaði álit sitt á hverjum og einum leikmanni. Þá sakaði Fotbolti.net hann um að villa á sér heimildir á Facebook undir nafninu Albert Örn Jónsson, en sá karakter varði Leif í hvívetna á samfélags­miðlum. Albert er ekki að finna í þjóðskrá.

Sjá einnig: Leifur áður verið rekinn – Sagður hafa varið sjálfan sig með fölsuðum aðgangi á Facebook

Heimildir Mannlífs herma að gengið hefði verið frá ráðningunni og að bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar sé kunnugt um það en sé ósáttur og muni funda um málið um helgina.

Gróa Axels­dóttir, skóla­stjóri Stapa­skóla vildi lítið tjá sig um málið þegar Mannlíf hringdi í hana við vinnslu fréttarinnar. „Ég hef í raun ekkert um þetta að segja. Ég er ennþá að ganga frá ráðningum þannig að það er allt saman í ferli hjá okkur.“

Hér er skjáskot frá innri vef Stapa­skóla þar sem Gróa tilkynnir starfs­mönnum skólans um ráðninguna:


Þegar blaða­maður Mannlífs hringdi í aðstoðar­skólastjóra skólans, Jón Hauk Hafsteinsson, vildi hann ekki tjá sig um málið. „Ég get engu svarað. Ég ætla ekki að tjá mig við fjölmiðla, þú verður að heyra í fræðslu­stjóranum eða skóla­stjóra.“

Hvorki náðist í forstöðu­mann fræðslu­sviðs Reykja­nesbæjar, Helga Arnarson né Kjartan Má Kjartansson við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá