Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Dagbjört Rúriks: ,,Þú veist þú varst að fara að reykja krakk er það ekki?!“

Helgar­viðtalið að þessu sinni tók Hildur María Sævars­dóttir við tónlistar­konuna Dagbjörtu Rúriks­dóttur.

Dagbjört gaf nýverið út fimm laga smáskífuna Rauðu Flöggin undir lista­manns­heitinu DIA en plötuna má nálgast á Spotify hér. Hún ræðir um ferilinn, hvernig hún semur tónlist og hvaðan hún sækir innblástur.

Dagbjört er búin að vera edrú í nærri þrjú ár. Hún rekur í viðtalinu neyslu­sögu sína og hvernig það að finna trúna hefur stýrt henni inn á rétta braut.

„Það var náttúru­lega mjög aðlaðandi að geta fengið svona dýrt og áhrifa­ríkt efni bara frítt, þangað til ég ánetjaðist því. Ég fór frá því að vera bara eitthvað „ég ætla að taka eina línu fyrir þig“, eitthvað þykjast bara vera cool, yfir í að vera bara „má ég fá meira?!“ – ég var bara orðin fíkill. Þá var ég orðin virkilega hrædd.“

Eftir það fór hún að fara á fundi en vissi þá ekki hvernig hún átti að snúa sér og var hálf týnd í lífinu.

„Ég var eig­in­lega bara að drekka kaffi og skoða strák­ana“

„Ég varð edrú eftir rosalega helgi þar sem ég var orðin svo veik af alkóhólisma að ég gerði bara allt til að fá meira en áfengi en tímdi ekki að kaupa það sjálf þannig að ég endaði í partýi eftir bæinn með einhverjum strákum sem ég treysti engan veginn og þeir voru sem sagt að bjóða mér einhverja pípu. Þetta leit út fyrir að vera bara graspípa eða eitthvað, og ég var bara „já, það er ekki neitt fyrir mér!“, og þá kom bara að mér einhver stelpa í partýinu upp úr þurru að mér og sagði bara „Heyrðu! Ég held að þú þurfir að fara heim núna!“. Ég hélt bara að hún væri eitthvað öfundsjúk og kærastinn hennar í partýinu eða hún eitthvað pirruð að ég væri þarna. Ég var aðeins pirruð við hana en samt einhvern veginn ókei, fór með henni í leigu­bílnum. Ég vissi ekkert hver þessi stelpa var, hún bara kom einhvern veginn upp úr þurru og það ljómaði einhvernveginn af henni. Svo kom ég heim og sofnaði, hringdi í hana næsta dag og ég sagði bara „Takk fyrir að koma mér heim en hvað var í gangi? Af hverju vildirðu svona að ég færi?

„Þú veist að þú varst að fara að reykja krakk er það ekki?“

Þetta var eitthvað sem ég var búin að lofa mér að ég myndi aldrei gera, reykja krakk! Þú veist, ég vissi alveg hvað ég var að gera, ég vissi alveg hvað ég var að gera, fá mér nokkra Mangó-Tangó og hafa gaman að lífinu og þykjast vera bara alveg með þetta en þarna var ég næstum farin að reykja krakk!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

„Megi Allah veita öllum þeim sem eiga um sárt að binda styrk“
Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt