Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Skiptar skoðanir á uppástungu Andrésar um vinnu barna: „Misnotkun og ofbeldi bíður þeirra“

Andrés Jónsson, almannatengill.
Andrés Jónsson, almanna­teng­ill.

Nýtt hitamál komst í umræðuna um liðna helgi þegar Andrés Jónsson, almanna­tengill hjá Góðum samskiptum, birti færslu á Twitter þar sem hann stakk upp á því að börn á aldrinum 12-18 ára fengju rýmri heimildir til að vinna.

„Það vantar fólk í verslun, veitingar og þjónustu. – Þau og foreldrar þeirra myndu gjarnan vilja fá létta sumar­vinnu fyrir þau. – Verndun táninga frá því að þurfa/mega vinna hefur gengið aðeins of langt,“ segir í færslu Andrésar.

Tillagan hefur fengið mikil viðbrögð en misjafnar undir­tektir. Þannig svarar einn notandi:

„Almennur vinnu­markaður er enginn staður fyrir börn. Núverandi reglugerð er alls ekki of stíf. Misnotkun og ofbeldi af fjöl­breyttum toga bíður þeirra á mörgum vinnu­stöðum af bæði yfir­mönnum og óvönduðu starfs­fólki þar.“

Sumir eru ansi harðorðir í garð Andrésar, spyrja hann hvort hann hafi verið „bitinn af geisla­virkri frjáls­hyggju“ og þar fram eftir götunum.

Einhverjir benda á að ef þörf sé fyrir vinnuafl skjóti það skökku við að vísa á sama tíma fólki úr landi sem hafi áhuga á að búa hér og starfa.

„Ég er sammála að það megi rýmka heimildir enda ákveðin hræsni sem ríkir í dag t.d ef það er vinna í auglýsingu eða leikhúsi (eitthvað nógu fansý) þá er það í lagi. Ég vil þó ekki fara til baka í þá tíma sem börn unnu í fiski frá morgni til kvölds. Klárlega umræða sem á rétt á sér,“ segir ein á forritinu.

„Það er líka allavega eitt starf sem ég veit um sem unglingar vinna gjarnan og það er barna­pössun. Er það ekki móðins lengur?“ spyr önnur.

„Sem einhver sem fór að vinna 12 ára með skóla þá hefði ég frekar viljað æsku. Hefði verið gaman að rækta áhugamál,“ bendir ein á.

„Það var heil bylting til að leyfa börnum að lifa lífi sínu frjálst frá atvinnu­markaðinum og þú vilt henda þeim til baka?“ spyr einn notandinn.

Andrés bendir helstu andófs­mönnum á að hann þekki til foreldra sem vilji að börn þeirra fái að vinna. „Foreldrar, sem ég veit að eru góðir foreldrar, eru í röðum að leita að vinnu fyrir börnin sín svo þau hafi eitthvað fyrir stafni í sumar.“

„Ef börnin hafa þroska og vilja til þess að gera þetta á eigin forsendum þá er það í góðu lagi. Grunar samt að börnin sem færu í þennan pakka muni hugsa seinna meir að þau hefðu sagt sjálfum sér, þá sem foreldrar að vera börn lengur,“ skrifar einn við færsluna.

Ein spyr hvers konar rýmkun Andrés sé með í huga. „Þau mega nú þegar vinna létta vinnu, unglingar í 40 tíma á viku. Er ekki vanda­málið bara að fólk vill helst ekki ráða börn?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá