Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Alicia Fall frá Her Many Voices – Fann sína köllun er hún hitti konu og börnin hennar ellefu

Alicia Fall
Alicia Fall

Hamp­félagið stendur á bakvið HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálfsögðu um HAMP.  Þátta­stjórnendur eru stjórnar­menn Hamp­félagsins Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs. Gunnar Dan Wiium sér um úrvinnslu og fréttar­skrif og Sigfús Óttarsson um tæknimál.  Gestir þáttarins verða bæði íslenskir og erlendir sérfræðingar á sínu sviði um nýtingu hamps. 

Nýjasti gestur Hamp­kastsins er Alicia Fall sem er stofnandi Her Many Voices sem er samfélags­verkefni í Banda­ríkjunum þar sem frum­byggjum er hjálpað til að hjálpa sér sjálfum.

Tekið skal fram að viðtalið fór fram á ensku.

Hennar mörgu raddir

Alicia er fædd í New York og en eftir þrítugt fór hún að flakka talsvert milli New York og Colorado. Alica vann í tónlistar­bransanum og í enda þess ferills fór vinna hennar mikið að snúast um tónlistar­viðburði tengdum góðgerðar­málum og út frá því stofnaði hún góðgerðar­samtökin Her Many Voices árið 2009. Nafnið Her Many Voices vísar í móðir jörð sem Her og börn jarðar sem Voices. Áheyrslan í byrjun var á konur og börn og út frá þeirri vinnu var stofnaður sjóður sem hefur verið hennar aðal­hlutverk að halda utan um síðustu ár. 

Alicia á ættir sínar að rekja til frum­byggja N-Ameríku og er austur Bensaliki eða Cheerioki. Hún á tvær ættleiddar dætur sem einnig eiga rætur sínar að rekja til frum­byggja og eru þær virkir aðgerða­sinnar í mannréttindarmálum í dag.

Haiti og hampurinn

Í kringum sjóðinn starfa um 13 manns auk hinna ýmsu verktaka og hafa höfuð­áherslur verið í kringum menntun og ýmis hjálpar­störf tengt fólki sem býr við fátækt. Eftir jarð­skjálftann í Haiti 2010 kynntist Alicia konu þaðan sem varð til þess að sjóðurinn hefur gefið mikla orku í menntun og uppbyggingu á Haiti síðan. 

Um 300 hundruð þúsund manns létust í jarð­skjálftanum árið 2010 og hefur stór hluti fólks í Haiti búið við matvæla- og húsnæðisóöryggi síðan, sem Alicia hefur ávarpað af miklum þunga í tengslum við þeirra hjálpar­starf sem hefur að miklu leiti snúið að kven­mönnum í vanda eftir þessar hörmungar. 

Síðustu sex ár eða svo hefur hún unnið með hamp­iðnaðinum með það að leiðar­ljósi að skapa atvinnu, fæðu og húsnæðis­öryggi á svæðum eins og Haiti því plantan býður að hennar mati upp á nánast óendanlega möguleika hvað þessa öryggis­þætti varðar. Þessi þrotlausa vinna Aliciu er farin að skila árangri eftir miklar samræður og kynningar hátt­settra manna í ríki­stjórn Haiti því ennþá er ræktun hamps ólögleg þar en vonast Alicia til að það muni breytast vegna þeirrar vinnu sem farið fram gegnum Her Many Voices. 

Her Many Voices hefur flutt inn til Haiti sérfræðinga á sviði hamps, ræktunar og fram­leiðslu á afurðum hampsins til að kynna fyrir stjórn­völdum mögu­leikana sem felast í hampinum með góðum árangri. Stjórn­völd Haiti fylgja að miklu leiti löggjöf N-Ameríku og í kjölfar vakningarnar sem hefur átt sér stað í BNA segir Alicia að það líði ekki að löngu þar til hampurinn verður gerður löglegur í Haiti og þá muni það koma í ljós hve mikil lyftistöng fyrir bugað samfélag hampurinn mun verða.

Varðandi möguleika hampsins í byggingar­iðnaði, hafa rann­sóknir leitt í ljós að hamp­steypan komi nokkuð vel út í jarð­skjálfta­mælingum auk þess að mygla og raki þrífst ekki í hamp­steypunni sem er algengt vandamál á svæðum sem Haiti sökum raks loftlags og mikils hita. Þar að auki er eðli hamp­steypunar þannig að hún einangrar hitan úti og geri rýmið innandyra svalara sem einnig er dýrmætt á heitum slóðum. 

„Einkavæðing heimilanna“

Hemp Long house community er verkefni sem Alicia er einnig að beina orku sinni að þessa dagana. Hún talaði um hefðir frum­byggja þar sem margar fjöl­skyldur byggju í mikilli nálægð við hvort annað, hugsuðu um hvort annað, studdu hvort annað eins og stór fjöl­skylda eða ættbálkur sem er drifið áfram af tengslum við hvort annað og sameiginlegri velferð. Hún vill meina að þetta er það sem okkur nútíma fólki vantar í tengslarofnum heimi þar sem mikil áhersla er lögð á sjálf­stæði einstaklingsins og sjálfs­bjargar­viðleitni sem getur farið of langt og fyrir vikið hætt að sinna sínum tilgangi því það skapi tengslarof við samfélagið með tilheyrandi þjáningu. 

Alicia segir að samfélags­vandi okkar í dag byggist á þessu, þessari „einka­væðingu“ og því séu svokölluð Long house concept ekki bara ákjósanleg heldur nauðsynleg til að sameina okkur, fara til baka í rætur samfélagsins. Verkefnið myndi þá snúast um að mennta og færa fólk saman í þekkingu hampsins allt frá fræi til afurðar og fram­leiðslu. Sigurður sagði henni frá því hvernig þar til fyrir ekki svo mörgum öldum eða áratugum síðan hafi íslendingar einnig búið saman á þennan hátt. Fólk bjó saman í nátt­úrlegum bursta­bæjum og safnaðist saman í baðstofum þar sem fólk borðaði saman, söng og kvað vísur, fólkið fékk hita af hvort öðru og treysti á þessi tengsl allt frá unga­börnum til gamalmenna.

Fann sína köllun

Sigurður spurði Aliciu hvað það hefði verið sem kveikti áhuga hennar á hampi og mögu­leikum plöntunar. Alicia segist hafa upplifað vissa opinberum þegar eitt sinn hafi hún hitt fyrir konu sem bjó í hjalli sem samanstóð af gömlum bárujárns­plötum og gömlum greinum. Þar bjó þessi kona með sín ellefu börn við sára fátækt. Alicia hugsaði með sér að enginn eigi að þurfa að búa við svo sáran kost og það væri svo margt hægt að gera til að sporna við og stíga úr þessari fátækt og þessu vonleysi. Hún hugsaði með sér hvað væri best eða ákjósanlegast fyrir þessi svæði að nota til uppbyggingar á sjálf­bærum innvið. 

Á þeim tíma var kannabis nýlega orðið löglegt í Colorado þar sem hún bjó mest af tímanum. Einn af stjórnar­meðlimum Her Many Voices var i hamp­ræktun og hann kynnti Alicu fyrir fólki sem byggði hús úr hamp­steypu. Hún sótti námskeið í hamp­steypu og segir að um leið og hún setti hendurnar í blauta hamp­steypuna, var sem hún öðlaðist skyndi­lega vissu um að hampurinn væri klárlega það sem hún hefði verið að leita að, hún fann sína köllun.

Hampurinn er mjög fyrirgefandi

Alicia stoppaði á Íslandi á leið til Amsterdam þar sem hún mun halda fyrir­lestra á ráðstefnu um sjálf­bæran lífstíl. Fyrir­lestrar hennar munu fjalla um hamp og mannúð og einnig mun hún fjalla um gríðarlegt skógar­högg á Haiti, sem þar fyrir­finnst, ásamt skógar­höggi í Suður Ameríku sem er gríðar­lega alvarleg umhverfisógn. Til að kjarna boðskapin hennar niður þá snýst hann um samfélags og náttúrulegt jafnrétti. 

Alicia hélt nýverið Ted-fyrir­lestur þar sem hún sagðist heyra oft þessa spurningu „hver er ég?“ og hún vill meina að við frekar ættum að vera spyrja okkur hver erum við, sýnum öðrum áhuga og væntumþykju, virkjum þessa samkennd sem heldur samfélaginu saman. Heldur hún því fram að lítil skref eins og hún sé að taka geti haft gríðarleg áhrif sem ekki má gera lítið úr. 

Varðandi hampinn og kolefnis­bindingu segir Alica undarlegt að öll þessi áhersla um allan heim sé á ræktun trjáa í tengslum við kolefnis­bindingu. Tré vaxa hægt og tíminn milli 10 og 150 ára þar sem tré af öllum gerðum og stærðum geta farið að binda kolefni að einhverju ráði. Hinsvegar með hampinn sem er búið að sverta og hefur verið ólöglegur í áratugi vex í sína fullu stærð á aðeins nokkrum mánuðum og er að binda allt að tuttugu sinnum meira af kolefnum en hefð­bundin tré. Ekki nóg með hreinsun loftins sem hampurinn fram­kallar þá er hamp­plantan þannig að hún hreinsar jarð­veginn sem við mann­fólkið erum einnig búin að menga gríðar­lega með allskonar kemískum efnum, hampurinn einfald­lega drekkur í sig nánast alla mengum og vinnur úr henni á náttúru­legan hátt af miklum krafti. Plantan er afar fyrir­gefandi og hjálpar okkur mönnunum að rétta úr þeim skaða sem við höfum valdið móðir jörð. 

Þennan upplýsandi og kærleiks­ríka þátt má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan áamt að Hamp­kastið finnst á öllum helstu streymis­veitum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt