Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Dökk mynd af stöðu sauðfjárræktar á Íslandi – Stór hluti bænda líklegur til að bregða búi

Mynd/skjáskot. Víkurblaðið
Mynd/skjá­skot. Vík­ur­blaðið

Dregin er upp dökk mynd af stöðu sauðfjár­ræktar á Íslandi í nýrri samantekt Byggða­stofnunar, sem unnin var að beiðni Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, innviða­ráðherra og ráðherra byggða­mála. Í saman­tekinni segir að rekstrar­afkoma sauðfjárbúa, fyrir fjármagns­liði og afskriftir, hafi verið neikvæð frá árinu 2018. Ekki væri útlit fyrir að rekstur sauðfjárbúa batni á næstu árum og að óbreyttum tekjum væru forsendur sauðfjár­búskapar brotnar.

Byggða­stofnun telur það hafa fjölþætt neikvæð byggðaleg áhrif hætti fólk sauðfjár­búskap. Það geti haft margfeldis­áhrif á ákveðnum svæðum, þar sem leitir og önnur sameiginleg verkefni sauðfjár­bænda verða þeim sem eftir sitja ofviða. Byggða­stofnun nefnir sem dæmi um viðkvæm svæði Reyk­hólahrepp, Dali, Strandir, Húna­vatnssýslur og norðaustur­horn landsins.

Í samantekt um mögulegar mótvægis­aðgerðir bendir Byggða­stofnun m.a. á að tekjur í greininni þurfi að hækka í takt við kostnaðar­hækkanir. Það verði annað hvort gert með hækkun á skila­verði afurða­stöðva til bænda og þar af leiðandi hækkandi útsölu­verði sauðfjár­afurða eða með auknum opinberum stuðningi. Einnig verði að skoða leiðir til að lækka framleiðslu­kostnað en slíkar aðgerðir skili fremur ávinningi til lengri tíma litið, en verði varla til bjargar við núverandi aðstæður. Þá komi til greina að aðstoða bændur við að fara út í aðra starfsemi á jörðum sínum eftir aðstæðum á hverjum stað. Loks er bent á að huga þurfi að andlegri velferð bænda og fjöl­skyldna þeirra við þessar aðstæður.

Í saman­tektinni segir að kynslóða­skipti hafi verið fátíð á undan­förnum fimm árum. Ríflega þriðjungur sauðfjár­bænda með 300 fjár eða meira væri kominn yfir sextugt og er talið að stór hluti þeirra sé líklegur til að bregða búi á næstu árum.

Að mati Byggða­stofnunar stefnir í að rekstrar­niðurstaða meðalsauð­fjárbúsins, sem hlutfall af tekjum, verði neikvæð um allt að 50% og að rekstrar­niðurstaða fyrir fjármagns­tekjur og afskriftir verði neikvæð um 25%. Miðað við stöðu mála væri því líklegt að einhverjir sauðfjár­bændur hætti búskap haustið 2022. Þeir sauðfjár­bændur, sem muni halda áfram geri það í þeirri von að rekstrar­aðstæður batni. Gerist það ekki megi búast við því að fjölmargir sauðfjár­bændur hætti búskap haustið 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ