Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Einfarinn sem hvarf sporlaust: „Þetta hefur verið erfitt en ég veit að hann kemur“

Skjáskot af Tímarit.is- DV 12.janúar 2011
Skjáskot af Tímarit.is- DV 12.jan­úar 2011

Matthías Þórarinsson var fæddur þann 17.maí árið 1989. Hann var eina barn foreldra sinna og bjó með þeim á Stokks­eyri. Faðir hans lést þegar Matthías var aðeins 14 ára gamall en þeir voru nánir. Það var honum því mikið áfall að missa föður sinn.

Honum er lýst sem skemmtilegum strák, miklu náttúru­barni og var hann sagður svolítill hippi í sér. Hann hannaði sín eigin föt, borðaði einungis lífrænt og klippti sjálfur á sér hárið.

Eftir andlátið fluttu mæðginin á Kjalarnes.

Matthías bjó í jeppa fyrir utan heimili þeirra sem hann notaði einnig til ferðalaga. Hann var í eðli sínu mikill einfari.

Þann 13.desember árið 2010 hringdi móðir Matthíasar í lögreglu, þá hafði hún ekki heyrt frá honum í nærri tvo mánuði. Hann átti það til að fara í ferðalög á jeppanum án þess að láta nokkurn vita en á þessum tíma­punkti var óeðlilega langt um liðið. Þann 10.janúar hafði hún aftur samband við lögreglu en þá hafði hún ekkert heyrt frá syni sínum yfir hátíð­arnar.

Skömmu síðar fannst bíll Matthíasar brunninn skammt frá heimili móður hans en ekkert benti til þess að hann hafi verið í bílnum þegar hann brann.

„Rússajeppi sem talinn er tilheyra Matthíasi Þórarinssyni, sem leitað hefur verið síðan á mánudaginn, fannst brunninn til kaldra kola á fimmtudag skammt frá malarnámum á Kjalarnesi. Matthías var ekki í bílnum og þar var heldur engar frekari vísbend- ingar að finna um ferðir hans. Samkvæmt lög- reglu er greini- legt að jepp- inn brann fyrir nokkru. Ekkert hefur spurst til Matthíasar síðan fyrir jól. Að sögn lögreglu mun hann vera mikill einfari en hefur þó alltaf látið fjölskyldu sína reglulega vita af ferðum sínum. Hann hætti þvíhins vegar rétt fyrir jól. Talið er hugsanlegt að síðast hafi sést til Matthíasar á Selfossi í vikunni fyrir jól. Þá var hann staddur á Austur­vegi á móts við mjólkurbú Flóa- manna á leið til austurs. Samkvæmt lögreglu sker Matthí- as sig töluvert úr hvað klæðaburð varðar og klæðist gjarnan fötum sem hann saumar sjálfur. Þegar sást til hans síðast var hann klæddur
í græna úlpu og galla­buxur. Þá er hann oft með svart svokallað buff á höfðinu,“ sagði í frétt DV árið 2011.

Umfangs­mikil leit var gerð í grennd við heimilið en ekkert fannst, nema lyklar Matthíasar sem voru í póstkassa við þjóð­veginn á Kjalarnesi.

Móðir Matthíasar telur hann vera á lífi og hafa miðlar sagt henni að hann sé að sinna mikilvægu verkefni erlendis. Hann átti þó ekki vegabréf og samkvæmt farþega­listum úr Leifstöð og Norrænu fór hann ekki úr landi. Matthíasar er enn saknað.

„Ekkert hefur spurst til Matthíasar Þórarinssonar síðan rétt fyrir jól 2010. Matthíasi var lýst sem sér- lunduðum einfara sem bjó í gömlum Rússajeppa. Jeppinn fannst í janúar 2011, brunninn skammt frá malarnámum á Kjalarnesi. Matthías var ekki í bílnum og engar vísbendingar að finna. Móðir hans, Þórgunnur Jónsdóttir, hefur ekki misst trúna á að hann skili sér. Hún segir erfitt að vita af hverju hann fór en hefur enga trú á að hann hafi viljað binda enda líf sitt. „Þetta hefur verið erfitt en ég veit að hann kemur,“ segir Þórgunnur og lýsir syni sínum sem skemmtilegum. Hún segir samband þeirra hafa verið afar gott en hún var nýflutt á Kjalarnes þegar Matthías hvarf. Hann bjó í Rússajeppanum fyrir utan,“ sagði í upprifjun Frétta­blaðsins á málinu þann 16.janúar 2016

Teljir þú þig hafa upplýsingar um málið er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000

Heimildir: DV 14.janúar 2011. Frétta­blaðið 16.janúar 2016. Saknað-Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H. Hall, 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur