Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Arion fær 87,7 milljóna króna sekt vegna fréttar Mannlífs: „Um raunverulegar upplýsingar að ræða“

Héraðs­dómur Reykja­víkur staðfesti á þriðjudag þá ákvörðun fjármála­eftirlits­nefndar Seðla­banka að sekta Arion banka um 87,7 milljónir króna. Um er að ræða stjórnvalds­sekt sem var lögð á bankann í júlí 2020, fyrir að upplýsa ekki eins fljótt og kostur var um fyrir­hugaðar hópuppsagnir hjá bankanum í september árið 2019.

Aðdragandi málsins er sá að Mannlíf birti frétt þar sem sagt var frá því að hópuppsagnir væru á dagskrá hjá bankanum. Í fréttinni sagði að uppsagnirnar væru liður í yfir­lýstri stefnu nýráðins banka­stjóra Arion banka um að auka arðsemi bankans. Frétt Mannlífs var birt 22. september 2019, á sunnudegi, en á miðvikudegi birtist tilkynning forsvars­manna bankans þar sem fréttin var sögð röng.

Þann 26. september, fjórum dögum eftir að frétt Mannlífs birtist, var sagt frá því að 100 starfs­mönnum Arion banka hefði verið sagt upp. „Með þeim skipulags­breytingum sem við kynnum í dag erum við að bregðast við aðstæðum til að tryggja að bankinn þjóni sínum viðskipta­vinum vel á sama tíma og hann skilar hluthöfum arði,“ sagði Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka um uppsagnirnar.

Fjármála­eftirlitið taldi að um væri að ræða innherja­upplýsingar sem gætu haft áhrif á verðmæti bankans.

Sögðu fréttina ónákvæma

Stjórn­endur Arion banka mótmæltu sektinni og vildu meina að fjármála­eftirlitið hefði hvorki gætt jafnræðis né meðalhófs í ákvörðun sinni. Máli sínu til stuðnings vísuðu þeir til fyrri ákvarðana fjármála­eftirlitsins um mun lægri sektir. Dómari við Héraðsdóm Reykja­víkur samþykkti ekki mótmæli banka­mannanna. Önnur málsvörn forsvars­manna bankans var sú að ekki hefði verið rétt hjá fjármála­eftirlitinu að brot bankans hefði staðið yfir í fjóra sólar­hringa. Það hefði hins vegar aðeins liðið þrír og hálfur sólar­hringur frá birtingu fréttarinnar þar til bankinn tilkynnti opinber­lega um uppsagnirnar. Þetta taldi dómarinn engu máli skipta.

Forsvars­menn bankans sögðu að frétt Mannlífs hefði verið það ónákvæm að upplýsingarnar gætu ekki hafa komið innan úr bankanum og þar með bæri þeim engin skylda til þess að birta innherja­upplýsingar um hópuppsagnirnar. Eins og áður segir kom fram í fréttinni að allt að 80 manns yrði sagt upp en að endingu var um 100 starfs­menn að ræða.

Um raunverulegar upplýsingar að ræða

Dómari héraðs­dóms telur fréttina sannarlega hafa inni­haldið upplýsingar sem í megin­atriðum voru þær sömu og höfðu komið fram á fundi innan bankans. Bankinn gæti ekki skýlt sér á bak við það að sá fjöldi sem tilgreindur hafi verið í fréttinni hafi ekki verið nákvæmlega sá sami og var sagt upp nokkrum dögum síðar. Ekki heldur að í fréttinni hefði ekki verið tilgreind samsetning þeirra starfs­manna sem segja átti upp.

Dómurinn kveður á um að sú ákvörðun Arion banka að fresta birtingu þessara innherja­upplýsinga í þennan tíma hafi verið í andstæðu við lög. Tilkynningar­skylda bankans hafi verið virk um leið og upplýsingarnar birtust í fréttinni þann 22. september.

„Aðal­atriðið er að um raun­verulegar upplýsingar var að ræða sem skiptu máli fyrir markaðinn en ekki upplýsingar byggðar á ónákvæmum getgátum vefmiðilsins,“ segir meðal annars í dómnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá