Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Covid-blóti frestað vegna Covid: „Við héldum bara í vonina um að úr rættist.“

Brúarás í Múlaþingi
Brúarás í Múla­þingi Mynd: Austurland.is

Þorra­blótinu í Brúarási í Jökulsár­hlíð í Múlaþingi sem halda átti um helgina hefur nú verið frestað um viku. Blótinu sem kallast þetta árið Covid-blótið er frestað vegna Covid smits.

„Já, því er nú verr og miður en við þurfum að fresta Covid-blótinu um eina viku vegna Covid-smits,“ segir Steinunn Snædal, einn skipuleggjenda Covid-blóts sem fram átti að fara í Brúarási næsta laugardags­kvöld, við Austur­frétt.

Aðspurð að þessu getur Steinunn ekki annað en hlegið en samkvæmt Austur­frétt er blótið á Brúarási eitt örfárra blóta sem haldin verða í ár, á landinu. Flestum þeirra var slaufað vegna Covid-ástandsins í samfélaginu. Segir Steinunn að fólk hafi ekki getað ímyndað sér að hætta við enn eitt blótið og því hafi þau beðið færis.

„Við héldum bara í vonina um að úr rættist og þess vegna blésum við þetta ekki alveg af heldur frestuðum þessu bara um nokkrar vikur og viti menn, það gekk svo upp þegar takmörkunum var aflétt. Jafnvel þó við þurfum að geyma þetta í viku í viðbót.“

Covid-blótið, fer fram að Brúarási þann 19. mars og eru allir velkomnir að sögn Stein­unnar. Þorra­hlaðboð og hljómsveit verður í boð en engir fullorðins­drykkir, slíkt þarf fólk að koma með sjálft.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ