Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Illugi fagnar fjölbreytileikanum: „Good man, good man!“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Illugi Jök­uls­son hitti ótrú­lega flóru fólks af erlendu bergi brotnu á ferð sinni um Reykja­vík.

Það eru fáir betri í örsög­unum en rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son en þær birtir hann reglu­lega á Facebook. Frægar eru orðnar heita­potta­sögur hans þar sem skemmti­legar mann­lýs­ingar hans fá að njóta sín til hins ýtrasta. Í nýj­ustu færslu sinni segir hann frá fjölda ein­stak­linga sem hann hitti á ferða­lagi sínu um höf­uð­borg­ar­svæðið en frá­sagn­irnar sýna vel hvernig fjöl­menn­ingin getur haft góð áhrif á grámyglu­legan hvers­dags­leika Reykja­vík­ur­borgar.

Í fyrstu frá­sögn­inni segir Illugi frá kúrdískum leigu­bíl­stjóra sem skutl­aði honum upp í Rík­is­út­varp.

„Leigu­bíl­stjór­inn var frá Kúr­distan og þegar hann frétti að ég væri á leið­inni upp í Rík­is­út­varp að taka upp sögu­legt prógram vildi hann vita hvort bara gam­alt fólk hlust­aði á þátt­inn. Ég sagð­ist halda að slæð­ingur af yngra fólki væri líka meðal hlust­enda og til dæmis hefði ég fengið góð við­brögð hjá sumu ungu fólki þegar ég las á sínum tíma fróð­leik um Kúr­distan.

„Var það komið frá Erlendi Har­alds­syni?“ spurði hann. „Ég met skrif Erlends mik­ils og hann á áreið­an­lega mik­inn þátt í að Íslend­ingum er almennt vel við Kúrda, en það hef ég fundið og þykir mjög vænt um. Hins vegar er bók Erlends barn síns tíma og sú fjöl­skylda kúrdíska leið­tog­ans, sem hann skrifar mest um, er ekki í hávegum höfð hjá okkur núna. Það mega Íslend­ingar alveg vita“.“Því næst segir rit­höf­und­ur­inn frá brosmildum manni frá Afríku sem hann mætti á göngu sinni frá Rík­is­út­varp­inu.„Þegar ég var svo á leið­inni gang­andi til baka yfir Mikla­túnið var ég nærri dott­inn um ójöfnu á gang­stíg og maður á hjóli, sem ber­sýni­lega á ættir að rekja til Afríku, ætl­aði að stoppa þegar hann sá að ég bað­aði út hönd­unum. Hann var með stóra poka á hjól­inu og fæst greini­lega við að hreinsa umhverfið af dósum og plast­flöskum. Þegar hann sá að það var allt í lagi með mig brosti hann út að eyrum og kall­aði: „Good man, good man“!“

Þriðja frá­sögnin sagði frá ferða­löngum sem reyndu að tala íslensku.„Á gang­stétt í Þing­holt­unum voru tveir stæði­legir ferða­langar að búast til heim­ferðar með tösk­urnar sínar. Þeir gætu verið upp­runnir við Ind­lands­haf og gest­gjafi þeirra, sem var svip­aður í hátt, var að reyna að kenna þeim íslensk kveðju­orð.„Verið-þið-bless­aðir,“ sagði hann hægt og skýrt og hinir reyndu að end­ur­taka það með litlum árangri. Svo hlógu þeir allir og tví­menn­ingar rúll­uðu af stað með tösk­urnar sínar í átt að BSÍ.“ Þá talar Illugi einnig um ítalskan mann sem fór með texta um Leif Eiríks­son inn í upp­töku­tæki, kurt­eisa Kínverja sem hann hitti á Skóla­vörðu­stíg og pólskar frænkur sem leit­uðu að Katta­kaffi­hús­inu. Hér fyrir neðan má lesa færsl­una í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Þolendur ofbeldis, 18 ára og eldri, geta fengið lögfræðiráðgjöf, ráðgjöf lögreglu og stuðning sér að kostnaðarlausu.
Heimur

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Heimur

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Heimur

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027