Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Heilbrigðisráðherra sammála Þórólfi – Grjótharðar aðgerðir um jólin

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur lagt til breytingar á lögum Mynd/skjáskot RÚV.
Willum Þór Þórsson, heil­brigð­is­ráð­herra, hefur lagt til breyt­ingar á lögum Mynd/skjá­skot RÚV.

Rétt í þessu samþykkti ríkis­stjórnin harðar aðgerðir vegna mikillar fjölgunar Covid-smita. Munu aðgerðirnar vafalaust hafa áhrif á jólahald margra, sem og að setja tónleika­hald í uppnám.

Ríkis­stjórnar­fundi lauk fyrir stuttu, um tillögur sóttvarna­læknis að hertum sótt­varnar­aðgerðum. Í gær greindust 286 smit innanlands, sem er metfjöldi. 27 smit greindust á landa­mærunum og voru smitin því 313 í heildina.

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra og Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra greindu frá hertum aðgerðum fyrir utan Ráðherra­bústaðinn við Tjarnar­götu strax að fundi loknum.

Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti. 20 manns mega koma saman og 200 í hólfi á viðburðum þar sem hraðprófs er krafist af gestum.

Tveggja metra regla verður tekin upp að nýju í stað eins metra reglu.

Sund­staðir, líkams­ræktar­stöðvar og skíða­staðir mega taka við 50 prósentum af leyfi­legum heildar­fjölda.

Skólarnir munu halda sínu striki, en ekki hefjast seinna eins og sóttvarna­læknir lagði til í minnis­blaði sínu til ráðherra. Willum Þór sagði að ráðherra sem fer með skólamál muni ræða við aðila innan mennta­kerfisins og skóla­stjórnendur varðandi fyrir­komulag og næstu skref.

Aðgerðir á landa­mærunum haldast óbreyttar til 15. janúar.

Aðgerðirnar gilda næstu þrjár vikurnar. „Við þurfum hertari aðgerðir til að hemja þessa fjölgun,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir um þá stöðu sem nú er uppi.

Aðspurð um afleiðingar hinna lang­varandi aðgerða á efna­haginn og þá sér í lagi fyrirtæki í veitinga­rekstri sagði Katrín að verið væri að undirbúa frekari stuðning til þeirra fyrir­tækja. Hún sagði það mál á borði fjármála­ráðuneytisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá