Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sýning til heiðurs Guðjóni Arnari Kristjánssyni: Einn aflasælasti togaraskipstjóri landsins

Guðjón Arnar Kristjánsson, heitinn.
Guðjón Arnar Krist­jáns­son, heit­inn.

Guðjón Arnar Kristjánsson, fyrr­verandi alþingis­maður og formaður Frjáls­lynda flokksins, lést á 74. aldursári árið 2018. Guðjón Arnar Kristjánsson var fæddur á Ísafirði 5. júlí 1944. Guðjón Arnar lauk stýrimanna­námi á Ísafirði 1965 og fiskimanna­prófi frá Stýrimanna­skólanum í Reykjavík ári síðar. Hann hóf ungur sjómennsku, var háseti, matsveinn og vélstjóri frá 15 ára aldri en síðar stýri­maður og skip­stjóri, allt fram til 1997.

Sýning til heiðurs Guðjóni

Sýning til heiðurs Guðjóni hefur verið sett upp á Ísafirði. Sýningin spannar langan feril Guðjóns og er hægt að skoða muni sem komu við í hans sjómanns­lífi. Mannlíf fór á stúfana og fékk að verða vitni af því þegar hringt var inn í sýningar­skálann.

Bernhard Överby var lengi stýri­maður hjá Guðjóni Arnari. Mynd tekin á sýn­ingu til heið­urs Guðjóni Arnari Krist­jáns­syni á Ísafirði í júní 2022. Ljós­mynd­ari: Þor­steinn Trausta­son.
Mynd tekin á sýn­ingu til heið­urs Guðjóni Arnari Krist­jáns­syni á Ísafirði í júní 2022. Ljós­mynd­ari: Þor­steinn Trausta­son.

Ungur til forystu og skrifaði mikið í blöðin

Guðjón Arnar valdist ungur til forystu í félögum stéttar sinnar, var formaður Skip­stjóra- og stýri­mann­félagsins Bylgjunnar 1975–1984 og forseti Farmanna- og fiskimanna­sambands Íslands 1983–1999. Jafnframt átti hann sæti í ýmsum nefndum og ráðum, svo sem Verðlags­ráði sjávar­útvegsins og Starfs­greina­ráði sjávar­útvegsins. Hann sat í stjórn Fiskveiða­sjóðs, í skóla­nefnd Stýrimanna­skólans í Reykjavík, í stjórn Fiskifélags Íslands og í stjórn Slysavarna­skóla sjómanna og var um tíma vara­fiskimála­stjóri. Hann skrifaði ávallt mikið í blöð um málefni sjávar­útvegs og sjómanna sérstak­lega.

Jafnframt forystu­störfum í samtökum sjómanna tók Guðjón Arnar þátt í stjórn­málum og sat á Alþingi sjö sinnum sem varamaður fyrir Sjálfstæðis­flokkinn á árunum 1991–1995. En vegna ágrein­ings um sjávarútvegsmál sagði hann skilið við flokk sinn og stofnaði með öðrum Frjáls­lynda flokkinn og var kosinn þingmaður hans 1999, fyrst fyrir Vestfjarða­kjördæmi en síðar Norðvestur­kjördæmi. Hann sat á Alþingi í tíu ár sem aðalmaður, fram til 2009, en samtals á 18 þingum ef allt er talið. Hann var formaður Frjáls­lynda flokksins 2003–2010. Hann átti lengst af þing­ferils síns sæti í sjávar­útvegs- eða samgöngu­nefnd, en einnig var hann um tíma í fjár­laganefnd og tók þátt í störfum Vestnorræna ráðsins síðustu ár sín hér.

Heilsteyptur og drengskaparmaður

Guðjón Arnar sýndi snemma af sér dugnað og áræðni, varð einn afla­sælasti togara­skipstjóri landsins og þekktur fyrir hreysti og kappsemi um borð í skipum sínum. Hann hafði ánægju af félags­störfum og var ungur valinn til forystu í samtökum sjómanna. Hann stóð vörð um réttindi þeirra á tals­verðum breytinga­tímum við upptöku kvóta­kerfis. Á það kerfi var hann gagn­rýninn og það leiddi hann öðru fremur til virkra stjórnmála­starfa. Það munaði um Guðjón Arnar hér í þinginu. Hann var fastur fyrir, sérlega talna­glöggur og setti sig vel inn í mál. En togara­skip­stjórinn reyndist ljúfur í samskiptum, glaðlyndur og fús til sátta og því einstak­lega þægilegur að vinna með. Hann var heil­steyptur maður og drengskapar­maður sem jafnan lagði góðum málum lið.

Mynd tekin á sýn­ingu til heið­urs Guðjóni Arnari Krist­jáns­syni á Ísafirði í júní 2022. Kristján Andri Guð­jóns­son, sonur kappans, og Jóna Símona Bjarna­dóttir safna­stjóri, Ljós­mynd­ari: Þor­steinn Trausta­son.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ