Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kjördagur – 277.127 á kjörskrá: „Maður gengur út í sól og blíðu, vor og fuglasöng“

||
||

277.127 eru á kjörskrá í 69 sveitar­félögum landsins þegar gengið verður til sveitar­stjórnar­kosninga í dag; 140.688 karlar og 136.365 konur.Kjósendur eru flestir í Reykjavík eða 100.405, en samtals eru kjósendur í sveitar­félögunum sjö á höfuð­borgar­svæðinu 177.816.

Á vef Þjóðskrár

má nálgast frekara talnaefni varðandi kosningarnar og fá upplýsingar um það hvar það á að kjósa. Gildandi kjörskrá miðast við lögheimili fólks 6. apríl á þessu ári.

Kjörstaðir opnir frá 9 – 22.00

Í frétt frétta­stofu RÚV segir að æplega 24.000 séu á kjörskrá í 15 sveitar­félögum á Suður­landi og litlu færri, rúmlega 23.400, í 11 sveitar­félögum á Norður­landi eystra. Tæplega 21.000 eru á kjörskrá í fjórum sveitar­félögum Suðurnesja og tæp 12.500 á Vestur­landi, þar sem sveitar­félögin eru 9.

Nær 8.000 hafa kosninga­rétt í fjórum sveitar­félögum Austur­lands. Rúmlega 5.500 eru á kjörskrá á Norður­landi vestra, þar sem sveitar­félög eru nú fimm talsins, og  5.259 eru á kjörskrá hinna níu sveitar­félaga á Vestfjörðum.

Sjálf­kjörið er í tveimur sveitar­félögum, Tjörneshreppi og Sveitar­félaginu Skaga­strönd, þar sem aðeins einn listi er í framboði á hvorum stað. Kjör­staðir verða opnaðir klukkan níu fyrir hádegi og verða flestir opnir til klukkan 22 í kvöld. Þó er kjör­stjórnum heimilt að opna kjörstaði síðar og loka þeim fyrr ef aðstæður leyfa.

Maður gengur út í sól og blíðu

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri ásamt Örnu Dögg Ein­ars­dóttur og dóttur þeirra Ragn­heiði Huldu Dags­dóttur. Mynd/Skjáskot Vísir

Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segist vongóður fyrir komandi dag. Hann mætti á kjörstað í Ráðhúsinu í morgun og sagðist bjartsýnn fyrir daginn og hvatti fólk til að kjósa og það snemma. Þá ættu kjósendur Eurovisionkvöldið eftir.

„Maður gengur út í sól og blíðu, vor og fuglasöng,“ sagði Dagur um það hvernig dagurinn byrjaði. Hann sagðist með fiðrildi í maganum en hann væri bjartsýnn og sagði að kosninga­baráttan hefði verið skemmtileg.

Hann sagði baráttuna hafa verið styttri en venjulega. Allt hafi verið svolítið seinna í gang og kjördagur hafi verið fyrr en venjulega.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, borg­ar­full­trúi og odd­viti Við­reisnar í borg­inni, mætti á kjör­stað í Árbæj­ar­skóla um klukkan 10. Mynd/Skjáskot Vísir
Sanna Magda­lega Mörtu­dóttir odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins tók dag­inn snemma og mætti á slag­inu níu í Vest­ur­bæj­ar­skóla. Mynd/Skjáskot Vísir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur