Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skotárásin í Hafnarfirði – Sex ára barn í öðrum bílnum

Sex ára drengur var ásamt föður sínum í öðrum bílnum sem skotið var á við Miðvang í Hafnar­firði í morgun. Þetta kemur fram hjá Vísi.

Skot­maðurinn, sem er karlmaður á sjötugsaldri, skaut í morgun á tvo bíla úr íbúðar­húsi við Miðvang í Hafnar­firði. Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps, en faðir ásamt sex ára gömlum syni sínum voru í öðrum bílnum sem skotin dundu á. Faðirinn segist í samtali við Vísi hafa verið á leið með son sinn á leik­skólann þegar þeir urðu fyrir árásinni. Hann er sagður í miklu áfalli og vill ekki láta nafns síns getið.

Skot­maðurinn er sagður hafa skotið með byssu út úr íbúð í húsinu við Miðvang, þar sem hann hélt síðan til í um fjórar klukku­stundir, á meðan sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra annaðist aðgerðir á svæðinu.

Fyrst bárust fréttir af því að árásar­maðurinn hefði skotið á eina mannlausa bifreið. Síðar kom í ljós að bílarnir voru tveir og annar þeirra ekki mannlaus. Ljóst er að mun verr hefði getað farið.

Bílarnir sem maðurinn skaut á voru stað­settir á bílastæði milli blokkarinnar sem hann hélt til í og leik­skólans Víðivalla. Foreldrum þeirra barna sem mætt voru á leik­skólann barst tilkynning vegna árásarinnar í morgun og þeim tjáð að börnin væru örugg inni í skólanum. Foreldrar þeirra barna sem ekki voru þegar mætt voru beðnir um að halda sig heima. Umsátrinu lauk þegar maðurinn gafst upp og kom út úr íbúðinni.

Miðlæg rannsóknar­deild lögreglu annast rannsókn málsins, sem er á frumstigi, en líkt og áður sagði er skot­árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps.

Íbúum við Miðvang og öðrum sem kann að líða illa vegna árásarinnar er bent á að hringja í hjálpar­síma Rauða krossins, 1717. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá