Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

„Yngsti fangi landsins“: Sviptur reynslulausn og situr áfram í fangelsi – Grunaður um skotárás

Hrannar Fossberg Viðarsson. Mynd/skjáskot. Vísir
Hrannar Fossberg Við­ars­son. Mynd/skjá­skot. Vísir

Hrannar Fossberg Viðarsson, var úrskurðaður í dag af Lands­rétti að afplána eftir­stöðvar refsingar af dómi sem hann hlaut í Héraðs­dómi Reykja­víkur árið 2018, en honum var veitt reynslu­lausn árið eftir. DV fjallaði um málið.

Hrannar er grunaður um skotárás á par í Grafar­holti aðfara­nótt fimmtudagsins 10. febrúar síðastliðins. Félagi Hrannars var einnig hand­tekinn, en Hrannar er sá sem grunaður er um að hafa skotið á parið. Verknaðurinn er talinn hafa verið út af afbrýðisemi en samkvæmt úrskurðinum voru Hrannar og konan áður par.

Áverkar hennar voru lífs­hættulegir, en byssuskot Hrannars hæfði konuna í kviðinn og maðurinn fékk skot í læri. Konan þurfti að gangast undir aðgerð til að fjarlægja byssu­kúluna úr líkama hennar.

Samkvæmt úrskurðinum játaði hinn maðurinn að hafa ekið Hrannari á vettvang. Þegar komið var að heimilinu í Grafar­holti urðu mennirnir varir við fyrr­verandi unnustu Hrannars. Hrannar hafi þá kallað til konunnar og hafi þá skotið úr byssu í átt að parinu.

Púður­leifa­rannsóknir lögreglu eru sagðar styðja við framburð félaga Hrannars en þær gefa til kynna að skotið hafi verið út um farþega­glugga bílsins en Hrannar sagt í farþega­sætinu frammi í, félagi hans sat hins vegar undir stýri.

Fékk þann vafasama heiður að vera yngsti fangi landsins

Hrannar hefur rætt um í fjöl­miðlum erfiða ævi, en hann á langan brota­feril að baki. Hann leiddist ungur út í neyslu og kom að lokuðum dyrum í kerfinu þegar hann reyndi að leita sér hjálpar. Þegar hann var sextán ára gamall hlaut hann skilorðs­bundinn dóm fyrir tilraun til manndráps og stór­fellda líkamsáras en hann var aðeins 15 ára gamall þegar brotin áttu sér stað.

Í desember 2017 var hann titlaður á Vísi yngsti fangi landsins en þá var hann vistaður í síbrota­gæslu á Hólms­heiði aðeins 18 ára að aldri. Þar hafði Hrannar orð á því að fangelsið væri besta meðferðar­úrræði sem hann hafði komist í kynni við en lítið væri við að vera varðandi vinnu og að hann hafi ekki fengið nein svör við tilraunum sínum til að skrá sig í framhalds­skólanám.

Í febrúar 2018 greindi Hrannar frá því þegar í viðtali við DV þegar hann var þá nýorðinn 19 ára gamall að hafi verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrir marg­vísleg brot – meðal annars  fyrir brot á vopna-, fíkniefna-, og umferðar­lögum auk hótana um ofbeldi.  Þungur dómur Hrannars helgaðist af því að með afbrotunum hafði hann rofið hinn skilorðsbunda dóm sem hann hlaut tveimur árum fyrr.

Hrannar hefur setið í gæslu­varðhaldi frá 11. febrúar vegna skot­árásarinnar í Grafar­holti. Rannsókn Grafar­holts­málsins er sögð vera á lokastigi en Hrannar er að verða búinn að afplána leyfi­legan hámarks­tíma gæslu­varðhalds.

HÉR er hægt að lesa úrskurðinn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá