Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kristinn sat orðlaus á blaðamannafundinum – „Réttarfarslegur skandall“

Kristinn Hrafnsson. Mynd / EPA
Kristinn Hrafns­son. Mynd / EPA

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks og félagi Julian Assange, segir rannsókn á meintu kynferðis­brotamáli Assange vera „réttarfars­legan skandal.“

Greint var frá því á blaðamanna­fundi í hádeginu að rannsókn á nauðgun, sem Julian Assange er sagður hafa gerst sek­ur um í Stokk­hólmi árið 2010, hafi verið látin niður falla.

Kristinn segir frá því í Facbook-færslu að hann hafi setið orðlaus á blaðamanna­fundinum.

„Ég sat áðan orðlaus yfir blaðamanna­fundi frá sænska saksókn­aranum sem ákvað nú að fella niður rannsókn á meintu kynferðis­brotamáli Julian Assange. Þetta er sum sé í þriðja sinn sem málið er fellt niður. Saksókn­arinn talaði um veikan vitnis­burð hins meinta fórnar­lambs og ónógar sannanir til að byggja undir málið. Það tók sum sé níu ár að komast að þessu,“ skrifaði hann meðal annars.

„Þetta er ekkert annað en réttarfars­legur skandall,“ bætti hann við. 

Kristinn segir að þegar upp er staðið snúist málið um ákæru Bandaríkja­forseta gegn Assange þar sem krafist er 175 ára fangelsis vegna leka á trúnaðar­gögnum. Hann segir það mál vera „árás á lýðræðið“.

„Hvenær ætlar fólk að vakna og sjá hversu alvarlegt það mál er? Þetta snýst ekki bara um Julian sem er núna píndur í ógeðslegri vist í mesta öryggis­fangelsi Bretlands, að mestu leyti í einangrun, og bíður réttar­halda í febrúar þar sem tekist verður á um framsals­kröfu bandarískra stjórn­valda. Málið gegn Assange er byggt á njósna­löggjöfinni banda­írsku sem aldrei áður hefur verið misbeitt gegn blaða­manni. Þetta er alvarlegasta aðför að frelsi fjölmiðla á Vestur­löndum á síðari tímum. Þetta er árás á lýðræðið.“

Færslu Kristins má lesa hér fyrir neðan:

Sjá einnig: Rannsókn á máli Julian Assange í Svíþjóð látin niður falla

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár