Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Stökk 15 metra og „sprengdi“ í sér hrygginn: „Ekki gera þetta“

Libby og hundurinn hennar, Sahara.
Libby og hund­ur­inn hennar, Sahara.

Libby Sinden, 22 ára gömul kona, hefur birt myndband af sér á TikTok þar sem hún sést stökkva 15 metra niður af brú og ofan í á fyrir neðan. Þetta stökk átti eftir að verða henni örlaga­ríkt. Eins og Libby lýsir því sjálf þá „sprengdi“ hún í sér hrygginn með þessu uppátæki. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Sun.

Nú er liðið ár síðan Libby stökk niður í ána Lune til þess að kæla sig á heitum sumardegi. Vinir hennar náðu stökkinu á myndband, en hún lýsir því sjálf að þegar hún lenti í vatninu hafi það verið eins og að lenda á steinvegg. Hún bakbrotnaði við höggið. Hún birti mynd­bandið nú ári síðar til þess að vara aðra við því að gera sömu mistök og hún sjálf.

Höggið við lendinguna olli sprungnum hryggjalið.

Í mynd­bandinu heyrist Libby öskra: „Ég slasaði mig í bakinu“, á meðan henni tekst að draga sig í skjól. Libby beið í sársauka í þrjá og hálfan tíma á meðan slökkvilið, sjúkra­bíll og fjalla­björgunar­aðilar komu henni til hjálpar. Hún var í vatninu þar til hægt var að lyfta henni þaðan á börum, en við það þurfti að fara afar varlega vegna bakmeiðslanna, sem ekki var vitað hvers eðlis voru.

Skjáskot úr mynd­band­inu.

Hún þurfti að gangast undir sex klukku­stunda aðgerð á hrygg og mænu þar sem málmplötu og skrúfum var komið fyrir í hrygg hennar til þess að festa hann aftur saman. Í öðru myndbandi sem hún birti á TikTok sýnir hún frá vegferð sinni.

Libby eyddi viku á sjúkra­húsi og var síðan bundin við hjólastól í fjóra mánuði. Hún þurfti að læra að ganga upp á nýtt. Hún segist heppin að hafa ekki lamast varanlega og að ekki hafi verið steinar undir yfir­borðinu þar sem hún lenti.

Hryggur Libby eftir aðgerð.

„Það er fullt af fólki sem stekkur oft af þessari brú. Ég hef séð ansi marga stökkva þarna, meðal annars börn, sem var allt í lagi með.

„Ég hafði fylgst með tveimur öðrum stökkva, en ég veit að í gegnum árin hafa hundruðir, jafnvel þúsundir gert það sama. Þar sem ég stóð uppi á brúnni fann ég adrenalíninu í bland við smá stress.

Um leið og ég lét vaða fann ég fyrir ótta, áður en ég lenti í vatninu, þegar ég áttaði mig á því hversu hátt þetta var í raun. Þetta voru um 15 metrar.“

Stökkið örlaga­ríka.

Libby segist hafa verið óheppin. „Það hvernig ég lenti í vatninu og sú staðreynd að það var stillt í stað þess að vera á ferð, varð til þess að þetta var eins og að lenda á steinvegg.“

Libby sprengdi í sér hryggjalið við höggið og hluti af beini hennar fór inn í mænu­göngin, sem aftur setti þrýsting á annað nýra hennar. Hún segist hafa verið afar nálægt því að lamast eða láta lífið.

„Það getur komið fyrir hvern sem er, hvenær sem er, að ein lítil ákvörðun breyti lífi þínu algjör­lega,“ segir Libby.

„Ekki gera þetta. Það gera allir mistök og ég vil vekja athygli á þessu.“

Libby er enn í endur­hæfingu og má ekki ennþá reyna á sig með því að hlaupa eða stunda aðrar áreynslu­íþróttir, sem hefur verið henni erfitt, þar sem hún var afar virk áður en hún lenti í slysinu.

Libby segir hundinn sinn, Sahara, hafa hjálpað henni mikið á vegferðinni og aðstoðað hana við jákvæðni.

„Ég fer með hana út að ganga og það hefur verið aðal hvatningin mín – að geta farið að ganga og leika við hana.

Libby þegar hún var bundin við hjóla­stól­inn.

Nú er liðið ár. Ég finn enn fyrir sársauka en mér tókst að ganga aftur með miklum vilja­styrk. Mér hefur tekist að gera aftur marga af þeim sömu hlutum og ég gat áður gert, þrátt fyrir að ég sé takmörkuð.

Vinir mínir hafa verið alveg ótrúlega stuðnings­ríkir; ég hefði ekki getað komist í gegn um þetta án vina minna og fjöl­skyldu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn