Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Dánarorsök Robbie Coltrane kunngjörð – Sex mismunandi heilsukvillar drógu hann til dauða

Blessuð sé minning hans
Blessuð sé minn­ing hans

Grín­goðsögnin Robbie Coltrane lést á dögunum aðeins 72 ára gamall, líkt og fram kom í fréttum. Dánar­orsökin hafa nú verið kunngjörð en talað er um sex ástæður fyrir andlátinu.

Harry Potter stjarnan hafði um tíma glímt við heilsu­bresti, meðal annars sykursýki og offitu. Þá átti fjöl­líffæra­bilun stóran þátt í dauða leikarans. Kemur þetta fram í frétt Mirror.

Robbie, sem dáður er fyrir bæði leik sinn og húmor, lést eins og fyrr segir aðeins 72 ára að aldri. Á dánar­vottorði hans kemur fram bæði listamanna­nafn hans sem og skírnar­nafn hans, Anthony Robert McMillan. Leikarinn tók upp nafnið Coltrane á áttunda áratug síðustu aldar til heiðurs djass­saxa­fónleikaranum John Coltrane.

Fyrir utan sykur­sýkina, ofþyngdina og fjöl­líffæra­bilunina, var það blóð­sýking sem átti þátt í andláti hans en hún olli miklum viðbrögðum um allan líkamann, sýkingu í neðri öndunar­vegi og hjarta­blokk.

Hjarta­blokk á sér stað þegar rafboðin sem stjórna hjartslætti þínum seinka eða stíflast.

Það var fyrr­verandi eiginkona Robbie, Pilates-kennarinn Rhona Gemmell, sem tilkynnti um andlát hans en þau höfðu haldið í vinskapinn eftir skilnaðinn.

Robbie, sem var tveggja barna faðir, var einn ástsælasti gaman­leikari Bretlands en hann lék einnig í drama­myndum á borð við Mona Lisa ásamt Bob Hoskins og James Bond myndunum Golden Eye og The World Is Not Enough. Þá lék hann einnig í grín­myndinni Nuns on a Run og Harry Potter myndunum en þar lék hann risann góðviljaða, Hagrid, svo eitthvað sé nefnt.

Meðal þeirra sem minntust Robbie eftir andlátið voru grín­istarnir Stephen Fry, Hugh Laurie og Tony Robinson ásamt höfundi Harry Potter bókanna, JK Rowling.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“