Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Írar og Svíar lækka skatta á eldsneyti – Hækkun á bensínverði kostar Selfyssinginn 50 þúsund krónur

Eldsneyti hefur hækkað um nálægt 35 krónur frá áramótum og nú kostar bensín­lítrinn um 299 krónur.

Ef tekið er dæmi um mann sem ekur á Toyota Corolla, bensín­drifnum bíl, og býr á Selfossi og vinnur í Reykjavík, þá þarf hann að fara á milli þessara staða 450 ferðir ári, miðað við tvær ferðir hvern virkan dag.

Það eru um 120 kíló­metrar á dag. Samkvæmt reiknivél orkusetur.is kostaði ferðin, fram og til baka, fyrir áður­nefndar hækkanir, um 1.976 krónur. Á ári eru það um 444.600 krónur.

Eftir undan­farnar hækkanir, miðað við 299 krónur pr. bensín­lítrann, er heildar­upphæðin 492.300.

Þannig er nú 47.700 krónum dýrara, á ári, fyrir umræddan mann að sækja vinnu og komast heim að vinnudegi loknum. Við þá upphæð má bæta tekju­skatti.

Vert er að geta þess að ekki er um nákvæma, vísinda­lega útreikninga að ræða.

Hluta hækkunarinnar umræddra verð­hækkunar á eldsneyti má rekja til innrásar Rússlands í Úkraínu og hækkunar heims­markaðs­verðs í kjölfarið, en verðið hefur hækkað um 20 krónur pr. lítra síðan rússnesk stjórn­völd lýstu yfir sjálf­stæði Donetsk og Luhansk í Austur-Úkraínu 20. febrúar.

Heims­markaðsverð hefur lækkað lítillega undan­farna daga og má rekja lækkunina til minni eftir­spurnar í Kína. Þann 10. mars lækkaði heims­markaðsverð á olíu einnig í kjölfar þess að Sameinuðu arabísku fursta­dæmin greindu frá stuðning sínum við aukna fram­leiðslu.

Þrýst hefur verið á íslensk stjórn­völd um að lækka tíma­bundið skatt á eldsneyti, en fyrir því eru fordæmi. Í því samhengi er vert að geta þess að um helmingur af verði hvers lítra á dælu hér á landi rennur í ríkissjóð undir formerkjum einhverra skatta.

Víða um heim íhuga stjórn­völd að grípa til lækkunar skatta á eldsneyti til að draga úr áhrifum hækkandi verðs á almenning. Írar riðu á vaðið og lækkuðu tíma­bundið skatta á eldsneyti og Svíar hafa fylgt því fordæmi og munu lækka tíma­bundið skatta á eldsneyti. Þess má geta að fyrir höfðu sænsk stjórn­völd ákveðið að lækka skatta á eldsneyti um sem nemur tæpum sjö krónum á lítra.

Sænsk stjórn­völd bæta reyndar um betur því þar í landi fá bifreiða­eigendur 1.000 sænskar krónur, um 14.000 íslenskar, í eingreiðslu og stuðningur við íbúa í strjál­býli verður enn meiri.

Stjórn­völd á Nýja-Sjálandi hafa ákveðið að lækka skatta á eldsneyti.

FÍB, Félag íslenskra bifreiða­eigenda, sendi í síðustu viku áskorun til íslenskra stjórn­valda þar sem kallað var eftir tíma­bundinni skatta­lækkun á olíu til að, m.a., lágmarka skaðleg áhrif á þjóðlífið.

Í viðtali við Mannlíf sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmda­stjóri FÍB, að áskorun til stjórn­valda hefði verið ítrekuð og þau svör fengist „að málið væri í vinnslu.“ Einnig ku hafa heyrst á þingi raddir ónefndra þingmanna sem telja óráð að lækka skatta á eldsneyti með tilliti til umhverfis­sjónarmiða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá