Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Eyrnasuðssjúklingar: Eiga hættu á að fá þunglyndi og ekki nægan djúpsvefn

Talið er að í kring um 15 prósent alls mannkyns þjáist af eyrnasuði. Fólk sem þjáist af eyrnasuði (tinnitus) er talið fá minni djúpsvefn að meðaltali. Nú hafa vísinda­menn við Oxford-háskóla í Englandi gert uppgötvun sem mögulega hjálpar við að greina orsakirnar og þar með skapa betri grundvöll fyrir meðhöndlun sem virkar. Linus Milinski, Fernando R. Nodal, Vladyslav V. Vyazovskiy og Victoria M. Bajo eru höfundar greinar í nýju hefti ritsins Brain Communications, þar sem niður­stöðum rannsókna er lýst sem sýna fram á tengsl lítils djúp­svefns og eyrnasuðs.

Í þekktri rannsókn frá árinu 2015, sem fjallað var um í viku­ritinu Time, var komist að þeirri niður­stöðu að fólk sem varð fyrir ítrekuðu rofi svefns yfir nóttina, og fékk þ.a.l. ekki nægan djúpsvefn, ættu miklu frekar á hættu að fá þunglyndi, hafa minna streitu­þoli o.fl. en fólk sem svaf álíka lítið í heildina en fékk betur samhangandi svefn (og meiri djúpsvefn).

Getur takmarkað lífsgæði verulega

Suð getur verið fyrsta merki þess heyrn sé að dofna, en þó getur suð einnig verið til staðar hjá fólki með eðlilega heyrn. Suð er sjaldan alvarlegt einkenni. Stöðugt eyrnasuð getur haft truflandi áhrif og takmarkað lífsgæði verulega en það er mjög einstaklings­bundið hversu mikil áhrif suð hefur á einstaklinga. Greina þarf orsök suðsins og því er öllum sem finna fyrir eyrnasuði ráðlagt að leita til læknis.

Jafnvel þótt til séu meðferðir við eyrnasuði sem hjálpa til við að slá á einkennin hjá mörgum, þá er ekki til nein þekkt lækning við þessum hvimleiða kvilla. Orsakir eyrnasuðs eru líka að ýmsu leyti enn ókunnar.

Verja minni tíma í djúpsvefni

Tengsl djúp­svefns og eyrnasuðs kann því að reynast vísinda­mönnum gagnleg vísbending í leitinni að meðferð við kvillanum.

Samkvæmt upplýsingum Hjarta­heilla er hljóð sem einstaklingurinn sjálfur heyrir en ekki aðrir í kringum hann kallað eyrnasuð. Hljóðið getur verið í öðru eða báðum eyrum en í sumum tilvikum inni í höfðinu. Það getur verið stöðugt eða komið og farið.

Þegar við sofum göngum við í gegnum nokkur stig svefns, með ólík stig virkni í heilanum og ólíkum heila­bylgjum. Djúpsvefn einkennist af hægum heila­bylgjum og er talið að djúp­svefninn sé mikil­vægastur til að okkur finnist við vera útsofin og vel hvíld. Vöðvarnir slappa vel af, það hægist á hjartslættinum og púlsinn dettur niður að lægstu mörkum. Þeir sem fá of lítinn djúpsvefn finna til þreytu og þess að vera illa upplagðir. Djúpsvefn er líka mikil­vægur fyrir minnið.

Kenning höfund­anna er sú að hlutar heilans í eyrnasuðs­sjúklingum er ofvirkur á meðan aðrir hlutar heilans sofa; þessu svipar að hluta til þess sem gildir um svefn­gengla. Þetta kann að hjálpa til að finna skýringar á því hvers vegna fólk sem þjáist af eyrnasuði upplifir meiri svefn­truflanir en aðrir, og eyða minni tíma í djúp­svefni en aðrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá