Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ragna Árnadóttir, í stjórn IFRC: „Það er ekki hægt að þóknast öllum, enda ekki til þess ætlast“

Ragna Árnadóttir
Ragna Árna­dóttir

„Ég hef verið sjálfboða­liði hjá Rauða krossinum á Íslandi í meira en 11 ár og þar af var ég vara­formaður stjórnar í átta ár. Ég var kölluð til að sinna þessu alþjóð­lega verkefni og ákvað að slá til, enda mikill heiður og ánægjulegt að geta gert gagn á þennan hátt. Það er áhugavert að vinna með fólki hvaðanæva að úr heiminum og hver heimsálfa á sinn fulltrúa í stjórninni svo þetta er afskaplega fjöl­breytt,“ segir Ragna Árna­dóttir. Rauði krossinn á Íslandi hlaut nýverið kjör til stjórnar Alþjóða­sambands Rauða krossins og Rauða hálf­mánans (IFRC Governing Board) á aðalfundi IFRC og er Ragna fulltrúi Rauða krossins á Íslandi og verður sjálfboða­liði í stjórninni næstu fjögur ár. Rauði krossinn á Íslandi hefur einu sinni áður átt fulltrúa í stjórn IFRC en Guðjón Magnússon læknir sat í stjórninni á árunum 1989-1993.

Í stjórn­ar­set­unni felst tæki­færi af hálfu Íslands til að móta stefnu IFRC til fram­tíðar.

„Ég var kjörin í stjórn IFRC sem fulltrúi Rauða krossins á Íslandi. IFRC er samband allra lands­félaga Rauða krossins og Rauða hálf­mánans um heim allan, alls 192 félög. Í stjórninni sitja forseti, fimm vara­forsetar og fulltrúar frá 20 lands­félögum. Hlutverk stjórnarinnar eru meðal annars að vera ráðgefandi milli aðalfunda IFRC, ráða framkvæmda­stjóra IFRC og sjá til þess að ákvörðunum aðal­fundar sé framfylgt. Í stjórnar­setunni felst tækifæri af hálfu Íslands til að móta stefnu IFRC til framtíðar og tryggja eftir­fylgni við markmið alþjóða­hreyfingarinnar um mannúð og óhlutdrægni um allan heim.“

Ragna segir að Rauði krossinn hafi algjöra sérstöðu. „Starfið er borið uppi af milljónum sjálfboða­liða sem þekkja best þarfir á sínum svæðum og njóta alþjóð­legs stuðnings við að mæta þeim þörfum. Samhliða er byggð upp aukin stað­bundin þekking og geta til að sinna hjálpar­starfi. Á átaka­svæðum er Rauði krossinn því miður stundum einu alþjóð­legu hjálpar­samtökin sem geta sinnt þolendum vegna sérstöðu sinnar sem hlutlauss aðila á átaka­svæðum. Samhliða því að sinna lífs­bjargandi mannúðar­aðstoð er rætt við þá sem berjast og þeir fræddir um alþjóðleg mannúðarlög sem eru lög sem gilda í stríði til þess að koma í veg fyrir enn frekari hörmungar af völdum átakanna.“

Ekki hægt að þóknast öllum

Ragna hefur víða komið við á starfs­ferlinum og má nefna að hún var skrif­stofustjóri laga­skrifstofu í dóms- og kirkjumála­ráðuneytinu í sjö ár auk þess að vera stað­gengill ráðuneytis­stjóra um tíma. Hún var svo lánuð stuttlega til forsætis­ráðuneytisins áður en hún var skipuð ráðherra. Hún var dóms- og kirkjumála­ráðherra 1. febrúar 2009 til 10. maí 2009, dómsmála- og mann­réttinda­ráðherra 10. maí 2009 til 2. september 2010, skrif­stofustjóri Lands­virkjunar 2010–2012, aðstoðar­forstjóri Lands­virkjunar 2012–2019 og skrif­stofustjóri Alþingis frá 2019.

Hvað stendur upp úr á þeim tíma þegar hún var ráðherra og hvað lærði hún af þeim tíma? „Þetta var mikil reynsla og ótrúlegir tímar. Ég var með gott fólk í kringum mig í ráðuneytinu sem veitti mér ómetanlega aðstoð og hjálp. Margar erfiðar ákvarðanir lágu fyrir og flókin álitamál. Í slíkum tilvikum er gott að geta hugsað málin vel út frá öllum hliðum en það gefst reyndar ekki alltaf tími til þess í stjórn­málunum. Þá er bara að taka því. Það er ekki hægt að þóknast öllum, enda ekki til þess ætlast.“

Kerfið getur verið býsna þung­lama­legt og slig­andi.

Hvað Lands­virkjun varðar segir Ragna að það hafi verið mjög  áhugavert og skemmtilegt að vinna í Lands­virkjun og kynnast atvinnu­lífinu. „Ég vann með góðu og kláru fólki og lærði mikið. Umhverfi fyrir­tækja og stofnana er enn sem komið er býsna ólíkt þótt ýmsir sameiginlegir fletir séu fyrir hendi. Það er ýmislegt í atvinnu­lífinu sem stofnanir geta tekið sér til fyrir­myndar. Kerfið getur verið býsna þunglamalegt og sligandi. Oft á það sér skýringar í þeim miklu kröfum sem eru gerðar til þess en ekki alltaf.“

Og núna er Ragna skrif­stofustjóri Alþingis. „Starfið er mjög fjöl­breytt. Það snýst meðal annars um rekstur á vinnu­staðnum Alþingi en starfs­fólkið er alls um 140 talsins, að starfs­fólki þing­flokka meðtöldu. Þing­mennirnir eru sem kunnugt er 63 þannig að hér er oft mikill erill. Það er ýmis þjónusta sem fylgir því að reka löggjafar­samkomu allan sólar­hringinn, allan ársins hring. Síðan snýr starfið líka að þing­haldinu sjálfu en fjöldi funda og mála sem fjalla þarf um er ansi mikill. Svo erum við að byggja nýtt nefnda- og skrif­stofuhús sem verður tekið í gagnið á næsta ári sem er mikil framkvæmd. Þannig að það er óhætt að segja að það sé fjör í vinnunni.“

Ragna er fyrsta konan til að gegna þessu starfi. Hvaða þýðingu hefur það fyrir hana? „Það er bara skemmtilegt. Ég er ekki fullkomnari fyrir það eitt að vera kona og þarf þess ekki heldur.“

Ég hef mik­inn áhuga á fólki og mann­legum sam­skiptum.

Hvernig myndi Ragna lýsa sér sem stjórn­anda? „Stjórnun snýst um að vinna með fólki. Ég hef mikinn áhuga á fólki og mannlegum samskiptum og nýt þess að vinna bæði í litlum hópum og stórum. Mannleg samskipti geta verið mjög flókin og það gerir þau einmitt svo áhugaverð.“

Út úr þægindarammanum

Ragna ólst upp í Reykjavík, Danmörku og Kópavogi. Hún segir að það hafi farið lítið fyrir sér. „Ég átti góða vini, æfði sund og var í skátunum. Einu draumarnir voru sennilega dagdraumar; það var nóg af þeim. Annars ætlaði ég alltaf að verða kennari enda komin af miklu skóla­fólki.“

Hvernig er lífs­stíllinn og hver eru áhuga­málin í dag? „Ég er í krefjandi starfi og huga vel að heilsunni, bæði líkamlegri og andlegri. Mér finnst gaman að vera á skíðum og að veiða. Ég er líka að reyna að komast á það stig í golfi.“

Ég var ekki eins feimin og ófram­færin og ég hélt.

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað hana mest? Hvað gerðist, hvernig tókst hún á við það og hvaða áhrif hefur það haft á hana? „Ráðherra­hlutverkið rak mig út úr þægindarammanum. Ég komst að því að ég gat farið í beina útsendingu án þess að fá hjarta­áfall og gat komið fram opinber­lega án þess að verða mér til skammar. Ég var ekki eins feimin og ófram­færin og ég hélt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá