Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Margrét og Villimey vinna í neyslurýminu Ylja: „Eruð þið að meina þetta? Má ég nota þetta?“

Margrét og Villimey
Margrét og Villimey

Nýjustu gestir bræðranna Gunnars og Davíðs Wííum eru þær Villimey Líf Friðriks­dóttir og Margrét Dís Yeoman. Villimey Líf sem er þroska­þjálfi og Margrét Dís sem er hjúkrunar­fræðingur, starfa að tilrauna­verkefni á vegum Rauða krossins sem ber heitið Ylja. 

Neyslu­rýmið Ylja er úrræði þar sem þau sem nota vímuefni geta komið og notað efnin í öruggu rými undir leiðsögn heilbrigðis­menntaðra aðila. Með þessu er reynt að koma í veg fyrir hættu á ofskömmtun sem og sýkingum sem algengar eru meðal neytenda. 

Ylja er færanlegt neyslu­rými og er fyrsta neyslu­rýmið sem opnar á Íslandi. Rýmið er í gamla bíl Frú Ragn­heiðar sem fengið hefur nýja bifreið til afnota. Neyslu­rými er lagalega verndað umhverfi þar sem notendur 18. ára og eldri geta sprautað ávana- og fíkni­efnum í æð undir eftirliti sérhæfðs starfs­fólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkinga­varna. Neyslu­rými eru starfrækt víða um heim og hafa mikinn samfélags­legan ávinning í för með sér.

Koma í veg fyrir neyslu á almannafæri

Ylja vinnur eftir hugmynda­fræði skaða­minnkunar, sem felur í sér að fyrir­byggja þann skaða og þá áhættu sem hljótast af notkun vímuefna fremur en að fyrir­byggja notkunina sjálfa. Villimey Líf og Margrét Dís segja að með því að veita öruggan og hreinan stað til að neyta vímuefna sé hægt að tryggja bætt öryggi til notenda sem og samfélagsins. „Markmið okkar er að koma í veg fyrir afturkræfanlegan skaða, vera til staðar fyrir einstaklinga, að þau hafi stað til að nota efni og bara að vera,“ sagði Villimey Líf og Margrét Dís bætti við: „Staðan er sú að þetta fólk sérstak­lega sem hefur ekki heimili á daginn er að nota efni inni á klósettum á veitinga­stöðum og inni á bókasafni, í bíla­kjallara og fleiri stöðum.“ 

Markmið Ylju eru því að lágmarka þörf einstaklinga til að neyta vímuefna á almanna­færi og þannig koma í veg fyrir þann skaða sem vímuefna­neysla í óöruggum aðstæðum getur haft í för með sér. Má þar nefna sýkingar, blóðborna smit­sjúkdóma og ofskammtanir. Ylja leggur einnig áherslu á að mynda traust, veita stuðning og viðhalda mannlegri reisn hjá notendum úrræðisins. „Já, þau koma þarna inn og þurfa að byggja upp traust, sumir ná því ekki strax, sumir þurfa bara að sitja og horfa á okkur og spyrja „eruð þið að meina þetta? Má ég nota þetta?“,“ sagði Villimey Líf.

Hvetja notendur til að nota Frú Ragnheiði á kvöldin

Ylja býður upp á hreinan búnað fyrir notkun vímuefna í æð og tekið er á móti notuðum búnaði. Ylja er þó ekki með búnað í sama magni og Frú Ragn­heiður og því hvetja þær Villimey Líf og Margrét Dís notendur að nýta sér þjónustu þeirra á kvöldin. Ylja er opin alla virka daga frá klukkan 10:00 til 16:00.

Stað­setningar Ylju eru breytilegar og er stöðugt unnið að því að finna stað­setningu sem hentar notendum sem allra best. Á daginn getur notandi haft samband í síma 774-2957 og fengið upplýsingar um stað­setningu bílsins.

Kostar 50. milljónir á ári

Laga­breytingar sem gerðar voru 5. júní 2020 eru grund­völlur þess að hægt er að reka neyslu­rými en þær fólu í sér heimild til sveitar­félaga um að koma á fót slíku rými. Eftir samþykkt laga­breytinganna hófust viðræður velferðar­sviðs við Sjúkra­tryggingar Íslands og í kjölfar þess við Rauða krossinn um reksturinn, að fengnu starfs­leyfi frá Embætti land­læknis.

Eftir að Embætti land­læknis gaf út starfs­leyfi vegna rekstursins, og skal það tekið fram að  það er í fyrsta skipti sem slíkt leyfi hefur verið veitt, tók neyslu­rýmið til starfa, nánar tiltekið 10 mars á þessu ári. Neysluýmið er tilrauna­verkefni til 1 árs og er ætlaður rekstrar­kostnaður neyslu­rýmisins um 50. milljónir króna yfir árið sem greiðist af Sjúkra­tryggingum Íslands.

Þakklátar fyrir traustið

Í lok þáttarins tóku þær stöllur fram plast­kassa sem innihélt hinn ýmsan búnað til neyslu á vímuefnum í æð. Mortel og hárnákvæma vog til að mæla magn þeirra efna sem notandinn dælir í sig. Svokallaða kúkkera og filtera til að blanda og gera efnin tilbúin til notkunar og svo síðast en ekki síst dælur sem fólk þekkir undir heitinu sprautur og nálar í mismun­andi stærðum og gerðum allt eftir æðum og húð notandans.

Villimey Líf og Margrét Dís sem byrjuðu báðar sem sjálfboða­liðar hjá Frú Ragnheiði segjast finna fyrir þakklæti fyrir að fá að vinna við að þjónusta þennan hóp sem svo oft er litin hornauga af bæði öðru fólki og stofnunum. Þær segja að með kærleik og virðingu nái þær að mynda tengsl við notendur sem þeir annars finna ekki útí samfélagi sem fram­kallar enn meiri aðskilnað og þjáningu og að það sé alls ekki neinum til góðs. Lokaorð þeirra Villimeyjar og Margrétar voru þau að þær væru afar þakklátar fyrir það starf sem þær vinna: „Við værum ekki hér ef ekki væri fyrir notenduna, traustið sem við erum búnar að vinna okkur inn og við erum bara ótrúlega þakklátar fyrir það, af öllu hjarta. Það er kannski það eina sem við getum sagt,“ sagði Villimey Líf og Margrét Dís tók fulls­hugar undir.

Þetta upplýsandi og kraft­mikla viðtal má hlusta á og horfa á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt