Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hafsjór af skemmtun á sjómannadeginum í Reykjavík: „Við ætlum að tjalda öllu til“

Sjómannadagurinn. Mynd/skjáskot. RÚV
Sjó­manna­dag­ur­inn. Mynd/skjá­skot. RÚV

Sjómanna­dagurinn verður haldinn hátíð­legur í Reykjavík í dag. Mikil spenna hefur ríkt í herbúðum þeirra sem hafa staðið að hátíðinni, en hún hefur legið niðri undan­farin 2 ár vegna Covid-19 og samkomu­takmarkana í kjölfarið.

Faxa­flóahafnir, Sjómannadagsráð og Brim eru bakhjarlar hátíðarinnar og standa að skemmtuninni við Reykja­víkurhöfn við Granda. Undir­búningur hefur staðið yfir í hálft ár en það eru þær Anna Björk Árna­dóttir hjá viðburðar­fyrirtækinu Eventum og Elísabet Sveins­dóttir, markaðs­kona sem hafa leitt þá vinnu.

„Við ætlum að tjalda öllu til og bjóðum upp á tvö svið, annað við Brim og hitt á miðjum Granda­garði. Þar stíga á stokk m.a. tónlistar­fólkið Bríet, Valdimar Guðmunds, Emilía Hugrún, Jón Arnór og Baldur, harmónikku­leikarar og Magnús Hafdal trúbador. Atriði úr Latabæ og Línu langsokk verður á litla sviðinu auk þess sem Ávaxta­karfan verður á stóra sviðinu. Þá er kodda­slagurinn klassískur auk þess sem reiptog, sigling með varð­skipinu Þór, bryggju­sprell, klifur­keppni, dorgveiði­keppni, krafta­keppni og fiskisúpusmakk verður í boði.

Kynnar verða síðan hin ofur­hressu Eva Ruza og Hjálmar,“ segir Anna Björk, framkvæmda­stjóri Sjómanna­dagsins í Reykjavík 2022.

Flökunarkeppni Æði-strákanna og heiðrun sjómanna

Hátíðin hefst klukkan 11 með lúðra­blæstri skipa í höfninni og skrúð­ganga fer frá Hörpu kl. 12:30 og endar á Granda þar sem við tekur fjöl­breytt dagskrá fyrir alla fjöl­skylduna.

Briddað verður upp á nokkrum nýjungum og ber þar hæst flökunar­keppni milli Æði-strákanna á stóra sviðinu við Brim, ratleikur með veglegum vinningum og verbúðar­sett á Sjóminja­safninu. Heiðrun sjómanna fyrir fram­úrskarandi störf í þágu atvinnu­greinarinnar fer fram í Hörpu kl. 14 og verður sú athöfn í beinni útsendingu á Rás 1.

Þátturinn Óskalög sjómanna endur­vakinn og í tilefni sjómanna­dagsins verður einn vinsælasti útvarps­þáttur allra tíma, Á frívaktinni (óskalög sjómanna) endur­vakinn. Þátturinn hóf göngu sína árið 1956 en var lagður niður árið 1990. Það er engin önnur en Svanhildur Jakobs­dóttir sem hefur umsjón með þessari hátíðar­útgáfu. Þátturinn verður á dagskrá á sjómanna­daginn kl. 15 á Rás 1.

„Það er gaman að RÚV ætli að endur­vekja þennan geysivinsæla þátt og það með sjálfri Svanhildi Jakobs­dóttur og vonum við svo sannarlega að hann falli í kramið hjá hlustendum. Þá verður verbúðar­setti stillt upp í Sjóminja­safninu við Granda þar sem fólk getur komið og tekið mynd af sér í settinu. Annars mælum við með að fólk kynni sér dagskrána vel á sjomannadagurinn.is eða á borginokkar.is/sjomannadagurinn,“ segir Elísabet Sveins­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá