Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Bjarni Benediktsson bannar blökkumanni að skemmta á Íslandi: „Einhliða og heimskuleg ráðstöfun“

Árið 1947 hafði undir­búningur staðið yfir um langt skeið við að koma hinum heims­þekkta djassista, Rex Stewart til landsins ásamt hljómsveit sinni. Átti hann að koma fram á 2-3 tónleikum en allt kom fyrir ekki. Dómsmálaráðherran Bjarni Benediktsson setti lög sem bannaði erlendum tónlistar­mönnum að koma til landsins. Þótti mörgum það skrítin tilviljun að þessi lög hafi verið sett rétt áður en blökku­maður boðaði komu sína með hljómsveit sinni.

Þjóð­viljinn skrifaði harðorða grein um málið og spurði hvort um kynþátta­ofsóknir væru að ræða:

Er Bjarni Ben. að heyja kynþátta­ofsóknir hér á landi?

Að því er Vísir skýrði frá í gær hefur hinni bandarísku blökkumanna­hljómsveit Rex Stewarts verið neitað um landvistar­leyfi hér á landi. Bjarni Benediktsson dómsmála­ráðherra hefur bannað allar skemmtanir útlendinga hér á landi. Síðustu árin hafa flykkzt hingað til lands allskonar loddarar og trúðar og auglýstir sem listamenn. Hafa flest borgara­blöðin lofsungið hástöfum þenna dáleiðslu- og fettu­brettulýð sem listamenn af guðsnáð, enda hafa þeir rakað saman fé með „skemmtunum“ sínum. Það hefði vitanlega verið eðlileg og sjálfsögð ráðstöfun að takmarka eða banna með öllu starfsemi slíkra manna — og hefði átt að gerazt fyrir löngu. En það er þá fyrst að Bjarni Ben. vaknar í þessu efni þegar blökkumanna­hljómsveit er væntanleg til landsins. Henni var ekki ætlað að halda hér nema 2 hljóm­leika og átti hún ekki að fá eyri hér í erlendum gjaldeyri, heldur einungis fargjald frá New York til Kaupmanna­hafnar greitt í ísl. peningum og uppihald meðan hún dveldi hér. Henni synjar Bjarni Ben. um landvistar­leyfi, og mun hún þó vera mun betri í sinni grein en trúðar þeir sem hér hafa verið að flækjast undan­farið. Það vekur því illan grun um að Bjarni Benediktsson láti hér stjórnast af kynþátta­fordómum sínum, einkum þegar þess er gætt að á sama tíma eru erlendir trúðar á hringför um landið að raka saman því fé sem þeim er unnt, en ekki hefur heyrzt getið að starfsemi þeirra hafi verið bönnuð. Að banna skemmtanir allra útlendinga er einhliða og heimskuleg ráðstöfun. Undan­farin sumur hafa komið hingað á vegum Tónlistar­félagsins nokkrir af beztu tónlistar­mönnum heimsins. Ef banna ætti með öllu komu slíkra manna værí það einungis til þess að setja skrælingja­stimpil á íslenzku þjóðina.

Rex Stewart

Í Tíma­ritinu Jazz var ráðherrann dreginn sundur og saman í háði vegna málsins:

Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti er það fréttist að dómsmála­ráðherrann, Bjarni Benediktsson, hefði bannað hljómsveit Rex Stewart að skemmta á Íslandi, og ekki varð þetta bann skiljanlegra við það, að litlu seinna kom út sú tilskipun frá sama manni, þess efnis að viðurkenndum lista­mönnum sé landvist heimil en trúðum bönnuð.

Því var almennt trúað áður en þessi tilskipan var send út að hinn hljómlistar­elskandi ráðherra væri vel að sér í íslenzkri tungu, þar sem hvert mannsbarn veit, að „trúður“ er nafn á fjölleika­fólki og öðru fólki, er gerir það að atvinnu sinni að leika á fjórar munn­hörpur, standa á höndum og hafa í frammi önnur skrípa­læti, og getur því ekki átt við hljóm­listamenn, eða vill Bjarni Benediktsson kalla íslenzka hljóm­listamenn trúða, þar sem hann veit að flestir hljóm­listamenn hér leika jazz.

En þar sem íslenzkukunnátta þessa manns var svo bágborin, hleypti hann inn hinu munnhörpu­leikandi og hoppandi fjölleika­fólki, en stöðvaði hina frægu hljómsveit Stewarts, með þeim forsendum að þetta gætu Íslendingar sjálfir, og vill með öðrum orðum halda því fram, að hinum klassisku hljóm­listamönnum vorum veitti ekki af að læra.

Það allra skemmtilegasta við þennan atburð er hinn mikli hljóm­listaáhugi hins sjálf­skipaða „tónlista­mála­ráðherra“, og hér eftir er það Bjarni Benediktsson, sem velur og hafnar þeim lista­mönnum, er til landsins vilja koma, og er það virðinga­vert hve mikla aukavinnu „tónlista­mála­ráðherrann“ leggur á sig, enda er hann þreyttur mjög um helgar og er skiljanlegt að hann tali þá ekki við hvern sem er, sérstak­lega ekki ef það á við þessa vitlausu tónlistamenn, er vilja ekki láta hann hafa vit fyrir sér, og vita ekki að Bjarni Benediktsson hefir miklu meira vit á tónlist en þeir.

Ungur maður hér í bæ sagði við mig í sambandi við þetta mál: „Þetta minnir mig á þann atburð, er kvenfélög í Washington bönnuðu Marion Anderson, hinni svörtu söngkonu að syngja í söng­höllum Washington-borgar vegna þess að hún var svört, en Marion var ekki að baki dottin og söng undir Lincoln-minnis­merkinu fyrir 40,000 áheyrendum“. Hvílíkur sigur tónlistarinnar yfir hugmynda­snauðum og kreddu­fullum andstæðingum. Þetta bann Bjarna Benedikts­sonar á skemmtunum Stewarts á Íslandi minnir á, er Duke Ellington var bannað að leika í Þýzkalandi á stjórnar­tímum Hitlers sáluga, en hann var einnig mikill jazzhatari og urðu þýzku jazzklúbbarnir að fara „undir jörðina“ eins og það var orðað, og sigur banda­manna í styrjöldinni var einnig sigur jazzins yfir kreddum í flestum löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá