Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vörpuðu upplýsingum um Assange á kennileiti Lundúna: „Ofsóttur fyrir að stunda blaðamennsku“

Frá aðgerðum stuðningsmannanna
Frá aðgerðum stuðn­ings­mann­anna Mynd: YouTube-skjáskot

Julian Assange átti 52 ára afmæli í gær og í tilefni þess birtu stuðningmenn hans upplýsingar um mál hans á helstu kenni­leiti Lundúnar­borgar.

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks og vinur Julian Assange, blaða­manns og fyrrum ritsjóra Wikileaks, skrifaði færslu í gær á Facebook. Tilefnið var 52 ára afmæli Assange sem hefur verið í haldi Belmash-fangelsinu í Bretlandi í fimm ár, fyrir að uppljóstra um stríðs­glæpi Bandaríkja­hers í Íraks­stríðinu.

„Julian Assange er 52 ára í dag og heldur upp á fimmta afmælis­daginn í Belmarsh, mesta öryggis­fangelsi Bretlands. Hann er pólitískur fangi í London, ofsóttur á pólitískum forsendum fyrir að stunda blaða­mennsku. Þetta er öllum ljóst í dag enda varla reynt lengur að breiða yfir þá staðreynd nema með aumlegum laga­tæknilegum útúr­snúningum. Hann gæti verið á leið til Banda­ríkjanna í fanga­flugi á næstu dögum eða vikum ef allt fer á versta veg.“

Kristinn hélt áfram: „Sú aumingja­lega þjónkun Breta gagnvart Bandaríkja­mönnum sem birtist í máli Assange er stærsta skömm Bretlands í dag. Þögn pólitískra leiðtoga annara ríkja Evrópu er skömm Evrópu og sú skömm dýpkar með hverri nýrri yfir­lýsingu þjóðar­leiðtoga annara ríkja utan álfunnar, frá Rómönsku Ameríku, frá forsætis­ráðherra Ástralíu og nú með stuðnings­merki frá Páfanum í Róm.

Til að minnast dagsins var upplýsingum varpað með myndvarpa á nokkur helstu kenni­leiti í Lundúnar­borg.“

Hér fyrir neðan má svo sjá myndskeið af aðgerðum stuðnings­manna Julians.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár