Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ísraelskir öfgaþjóðernirsinnar réðust að fjölmiðlum á Fánadeginum: „Dauði til Araba“

Þessi palestínska fréttakona leitaði skjóls bakvið tréhurð.
Þessi palest­ínska frétta­kona leit­aði skjóls bak­við tré­hurð.

Þúsundir ísraelskra þjóðernis­sinna hafa marserað í gegnum múslimska hverfið í gömlu borginni í Jerúsalem, með ofbeldi sem beinst hefur gegn fjöl­miðlum sem fjalla um viðburðinn.

Fána­gangan er partur af Jerúsalem-deginum í Ísrael en þá er því fagnað er ísraels­menn náðu austur hluta borgarinnar á sitt vald í stríðinu 1967.

Ráðist að fjölmiðlum

BBC segir að hópur göngu­fólks hafi kastað grjóti, spítum og flöskum að palestínskum og erlendu fjölmiðla­fólkið við inngang Damascus hliðsins. Þá hefur hópurinn einnig fagnað og öskrað rasísk ummæli á borð við „Dauði til Araba“.

Ráðherrar úr öfga-hægri ríkis­stjórn Benjamin Netanyahu mættu einnig í gönguna en þjóðar­öryggis­ráðherrann Itamar Ben-Gvir lýsti því yfir: „Jerúsalem er okkar að eilífu.“

Palestínu­menn lokuðu heimilum og verslunum meðfram göngunni í morgun af ótta við skemmdar­verk.

Fána­gangan hefur undan­farin ár verið sífellt meira notuð til að sýna mátt öfga­þjóðernis­sinnaðra Gyðinga, á meðan Palestínu­menn líta á gönguna sem augljósa ögrun til að grafa undan tengsl þeirra við borgina. Rasískir and-Arabískir söngvar hafa oft verið sungnir af þjóðernis­sinnum í göngunni en áður hefur viðburðurinn ollið mun grófara ofbeldi.

Ísraelska lögreglan hefur lofað að stöðva lögbrot á göngunni en kennir svæðis­bundnum „hryðjuverka­þáttum“ um „villta hvatningu til afbrota“ í göngunni á samfélags­miðlum. Sagði lögreglan einnig að um væri að ræða aðeins „lítinn minnihlutahóp báðum megin línunnar sem reyni að ögra“.

Palestínskir leiðtogar segja Austur-Jerúsalem viðburðinn vera „ögrandi athöfn“ og segja að öfga hægri ráðherrarnir Ben Gvir og Bezalel Smotrich, sem séu traustir stuðnings­menn göngunnar, vera að „planta fræum átaka“.

Ráðlagt að loka búðum sínum

Ísraelski forsætis­ráðherrann, Benjamin Netanyahu gaf grænt ljós á að viðburðurinn yrði haldinn eins og planað var og lögreglan gaf leyfi á að gengið yrði hinu venjulegu leið í gegnum borgina.

Meðfram göngu­leiðinni í gömlu borginni lokaði Samir Abu Sbeih nammibúð sinni og sagði að lögreglan hefði ráðlagt palesínskum fyrir­tækjum að gera það fyrir miðjan dag.

„Þetta er ekki þeirra land að fagna,“ sagði hann um gönguna. „Við búum undir hernámi og þess vegna verðum við að sætta okkur við þetta.“

Kebab-veitinga­staða­eigandi Basti, sem vill ekki gefa upp sitt fulla nafn, sagði að viðburðurinn hafi „versnað“ frá ári til árs.

„Stundum reynir fólkið sem er að dansa með fánana, að troða honum í andlitið á þér, stundum hrækja þau í andlitið á þér. Og þetta er ekki þægilegt.“

Sagði hann að lögreglan hefði sagt honum að það væri ekki verið að neyða hann til að loka, en ef að hann héldi veitinga­staðnum opnum í dag, væri það á hans eigin ábyrgð.

„Fyrir mína parta, þá vil ég bara vera innandyra. Mér líkar ekki vandræði, fyrir báðar hliðar,“ sagði Basti.

Fer versnandi ár frá ári

Jerúsalem dagurinn hefur verið haldinn hátíð­legur af Ísraelum í áratugi en síðustu ár hefur borið á hækkandi spennu.

Seinni part dags fara tugir þúsunda Ísraela frá vestur­hluta Jerúsalem til Gömlu borgarinnar og enda með svokölluðum fánadansi við Vestur-vegginn, heilagasta bænarstað Gyðinga.

Áður en kemur að fána­dansinum fara göngumenn sitthvora leiðina, en þúsundir, aðallega karlmenn og ungings­drengir fara inn í Austur-Jerúsalem. Þar ganga þeir í gegnum Damascus hliðið, en þá hefur Ísraelsher oftast hreinsað svæðið af Palestínu­mönnum fyrirfram, og svo inn í múslimska fjórðung Gömlu borgarinnar.

Undan­farin ár hafa hópar göngu­manna farið um syngjandi „dauði til Araba“ og „Megi þorp ykkar brenna“, á meðan aðrir berja glugga­hlera palestínskra verslana.

„Ekkert sem heitir Palestínu­menn“

Einn af göngu­mönnunum, Pini, sem ekki vildi gefa upp fullt nafn, sagði að hann hefði mætt í áratugi í gönguna sem fagnaði því að „Jerúsalem var sameinuð og aftur færð í hendurnar á Gyðingum. Frá 1948 til 1967, var okkur meinaður aðgangur að Vestur-veggnum,“ sagði hann og átti þá við tímabil þegar Austur-Jerúsalem var stjórnað af Jórdaníu. „Við snérum aftur að Vestur-veggnum,“ bætti hann við.

Aðspurður út í ógnandi andrúms­loftið fyrir Palestínu­menn sagðist hann vera á móti allri áreitni. En bætti svo við nokkru sem bergmálar afar umdeildar athuga­semdir frá öfga hægri ráðherrum þessa árs: „Það er ekkert sem heitir Palestínu­menn; hvenær var Palestína stofnuð? Er palestínskur konungur til? Er til palestínskur gjald­eyrir?“

Hin herskái Hamas hópur Palestínu varaði Ísrael í vikunni, við að kveikja ófrið, með því að fara yfir strikið í Jerúsalem á meðan á viðburðinum stendur.

Á fána­deginum árið 2021, skaut hópur eldflaugum að Jerúsalem frá Gaza-ströndinni eftir að spennan á milli þjóðanna hafði byggst upp viku fyrir hátíðina og breyttist í stríðs­átök.

Þetta árið virðist minni áhugi vera fyrir átökum eftir að enn ein blóðugu átökin á milli Ísrael og vígamanna frá Gaza-ströndinni endaði fyrir stuttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár