Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Rauðir pylsuputtar Karls III vekja athygli: „Líklegast merki um aldur hans“

Ljósmynd af Karli III Breta­konungi hefur vakið athygli á samfélags­miðlum undan­farna daga. Fingur konungsins eru rauðir og þrútnir og þykja vísbending um sjúkdóm.

Netverjar hafa margir áhyggjur af heilsu hins nýja konungs Bretlands en ljós­myndir og þá sér í lagi ein þeirra, sýnir bólgna og rauða fingur en fólk hefur verið að velta fyrir sér ástæðunni.

Pylsuputtar kon­ungs

Dr. Gareth Nye, dósent við háskólann í Chester í Bretlandi, sagði  Daily Star að ýmsir kvillar gætu orsakað bólgna fingur Karls III. Segir hann að ýmislegt gæti orsakað bólgna fingur, til dæmis bjúgur eða vökva­söfnun. „Bjúgur er ástand þar sem líkaminn byrjar að safna vökva í útlimum, venjulega fótleggjum og ökklum en einnig í fingrum, sem veldur því að þeir bólgna,“ sagði Dr. Nye. „Bjúgur er algengt ástand og hefur aðallega áhrif á fólk eldri en 65 ára þar sem hæfni til að stjórna vökva er takmörkuð,“ bætti hann við. „Til að sjá hvort þetta sé ástæðan er hægt að þrýsta á bólgna svæðið í sirka 15 sekúndur og sjá hvort far myndist.“

Þá segir hann að liðagigt komi einnig til greina. „Liðagigt – annar algengur sjúkdómur hjá fólki sem komið er yfir sextugsaldurinn. Það hefur oft áhrif á þrjú megin svæði í hendi – lið í þumal­putta eða öðrum hvorum lið í fingrum. Fingurnir stirðna oftast upp, verða sárir og þrútnir og þó að lyf geti hjálpað getur bólgan haldið áfram,“ sagði Dr. Nye.

Dr. Nye nefndi einnig sjaldgæfari orsakir bólginna fingra: „Sjaldgæfar orsakir geta verið mikið saltfæði sem leiðir til vökva­söfnunar, ákveðin lyf geta sjaldan leitt til bólgu sem aukaverkun eins blóðþrýstingslyf eða steralyf.“

Fullvissaði doktorinn lesendur að bólgan sé ekki vísbending um alvarlegan heilsu­kvilla.
„Það eru vissulega engar tafar­lausar heilsufars­áhyggjur hægt að álykta út frá bólgnum fingrum og er líklegast merki um aldur hans.“

Konungurinn hefur sjálfur gert grín að fingrum sínum í gegnum árin, meðal annars kallað þá „pylsu­fingur“ í bréfi til vinar síns, eftir að Vilhjálmur prins fæddist.

„Ég get vart sagt þér hversu spenntur og stoltur ég er. Hann lítur virkilega furðu girnilega út og er með pylsu­fingur, rétt eins og ég,“ er haft eftir honum í ævisögunni Charles, The Man Who Will Be King eftir Howard Hodgson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“