Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sr. Sigurður gaf Norðfjarðarkirkju veglega kveðjugjöf: „Sagan endurtekur sig“

Sr. Sigurður við gjöfina
Sr. Sigurður við gjöf­ina Mynd: Gunnar Gunnarsson

Norð­fjarðar­kirkju barst vegleg gjöf frá Sr. Sigurði Rúnari Ragnars­syni, sóknar­presti í Norð­fjarðar­kirkju til tuttugu ára og fjöl­skyldu hans. gáfu þau kirkjunni nýtt altaris­klæði þegar hann kvaddi söfnuð sinn formlega í vor.

Segir Sigurður í samtali við Austur­frétt að klæðið sé gefið til minningar um ömmur hans og móður sem hafi stutt vel við kirkjuna. „Þær voru einlægar kirkju­konur og velunnarar í kirkju­starfinu með ýmsu móti. Þá sunnudaga sem ekki var messað hér var hlustað á útvarps­messuna á heimilum afa og ömmu. Presturinn var líka oft heima­gangur hjá þeim. Sr. Páll og Kristrún amma mín voru einstakir vinir og náðu vel saman,“ rifjar Sigurður upp.

Sigurður segir að klæðin, sem eru græn í grunninn, með táknum eru Alfa og Omega í krossi, vera til að fyrra upp með búnaði kirkjunnar. Til útskýringar segir hann að til hafi verið pör af höklum og altaris­klæðum nema með einum grænum hökli hafi ekki verið samsvar­andi altaris­klæði. Fyrr en nú. „Græni liturinn er ætlaður fyrir sunnudaga eftir þrettándann og fram að föstu með þessum viðhafnar­búnaði fyrir kirkjuna mína,“ útskýrir hann í viðtali hjá Austur­frétt.

Í kirkjunni var þó fyrir til grænn hökull og altaris­klæði í stíl en táknir voru skúta með kross í mastri. Voru þau gefin af Sjómanna­dags­ráði á Norðfirði til minningar um föður Sigurðar sem lengi var hafnar­stjóri í Neskaups­stað og formaður sjómanna­dags­ráðs.

Prýðir það sett altarið og prestinn venjulega á sjómanna­daginn og er notað í hátíðar­messu á sjómanna­daginn og fram að aðventu. „Það var mér sértök tilfinning í minni fyrstu messu á Norðfirði, á sjómann­daginn 1999, að vera í þessum minningar­hökli um Ragnar föður minn. Svipuð tilfinninga gagntók mig er ég gekk í fyrsta sinn inn í kirkju­garðinn á Skor­rastað, í minni sókn. Forfaðir minn í fimmta lið, sr. Hinrik Hinriksson, þjónaði þar. Það má því segja með sanni að sagan endurtaki sig með ýmsum hætti!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp