Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bardagi mögulega í Colosseum: Zuck vs. Musk

Samsett mynd/Twitter/Facebook
Samsett mynd/Twitter/Facebook

Tölu­verðar líkur eru á að forsprakkar Facebook og Twitter, Mark Zuckerberg og Elon Musk, muni etja kappi í blönduðum bardaga­listum á næstu misserum.

Samkvæmt TMZ mun embættis­maður tengdur ríkis­stjórn Ítalíu hafa sett sig í samband við Zuckerberg og lagt til að bardaginn milli þeirra Musk færi fram í frægasta bardaga­stað veraldar, Colosseum í Róm.

Menningar­mála­ráðuneyti Ítalíu blæs á þessar fréttir og segja að það hafi hvorki verið formleg- né skrifleg samskipti vegna þessa og ef félagarnir vildu mætast í Colosseum þyrfti rimman að vera án ofbeldis en TMZ fullyrðir að heimildar­menn þeirra sem hafi beina aðkomu að málinu hafi vitneskju um að ráðuneytið hafi haft samband við fólk Zuckerbergs sem svo kom málinu áfram til Dana White, forseta UFC. Málinu hafi verið fylgt eftir og síma­fundur hafi verið boðaður í næstu viku.

Heimildar­menn TMZ staðhæfa að báðir aðilar séu mjög spenntir fyrir því að bardaginn fari fram í hringleika­húsinu fræga en þar hafa ekki farið fram stórir viðburðir í hundruð ára og aðeins sé rúm fyrir nokkur hundruð manns í einu. Eina undan­tekningin er þegar Paul McCartney hélt þar góðgerða­tónleika fyrir 400 manns árið 2003 en aðrir viðburðir hafa alltaf verið haldnir fyrir utan bygginguna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár