Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Rekin úr flugvél eftir að hafa sagt frá hnetuofnæmi:„Aldrei á ævi minni fundist ég jafn lítilsvirt“

Nemi var niður­lægður og hent út úr flugvél eftir að hafa sagt áhöfninni frá hnetu­ofnæmi sínu.

Mirror segir frá Marissu Williams sem sagði miðlinum að hún hafi brotnað algjör­lega niður þegar hún horfði á eftir flug­vélinni sinni á leið frá flug­vellinum á Kuala Kumpur og til Banda­ríkjanna, án hennar.

Marissa Williams

Hin 21 árs Marissa er viðskipta­fræði­nemi við Georgia Highlands háskskóla í Banda­ríkjunum en hún hafði heimsótt fjöl­skyldu sína í Malasíu, ásamt móður sinni AikWah Leow. Hafði flugið til Malasíu gengið án vankvæða en ekki er hægt að segja það sama um heim­ferðina.

„Ég var reyndar mjög stolt af sjálfri mér þegar ég steig um borð í flugvél Turkish Airline. Ég hafði oft flogið en þetta var í fyrsta skipti sem ég ætlaði að fara ein í utan­landsflug,“ sagði Marissa við Mirror. „Ég var búin að fara að afgreiðslu­borðinu á flug­vellinum þegar ég skráði mig inn og lét starfs­fólkið vita af ofnæmi mínu svo þau gætu upplýst áhöfnina en við gerðum það á leiðinni til Malasíu.“

Marissa hafði skráð sig inn og sest í sæti í sextándu röð er yfir­flugfreyjan og flug­félags­stjórinn nálguðust hana til að ræða við hana um ástand hennar.

Hún sagði þeim að hún gæti ekki borðað trjá­hnetur vegna ofnæmis og bað þau að gera öðrum farþegum viðvart með tilkynningu í kall­kerfinu, líkt og sama flugfélag hafði gert á leið út til Malasíu í tvennum tengi­flugum.

„Þau sögðu að myndu ekki koma með neina tilkynningu. Ég skammaðist mín grimmt. Ég bað þau um að láta að minnsta kosti þau í kringum mig vita en þau neituðu því líka og gengu á brott. Ég fór að vera mjög stressuð, þau sögðu mér að þau væru að bjóða upp á hnetur á fyrsta farrými og að lyktin myndi berast um allt. Ég sagði að það væri í lagi þar sem ég myndi ekki borða hneturnar sjálf og myndi bera tvær grímur til að koma í veg fyrir að ég fyndi einhverja lykt,“ sagði Marissa og bætti við: „Þau komu aftur og sögðu mér að ég gæti ekki flogið. Þau báðu mig um að fara og opnuðu hólfin þar sem taskan mín var. Ég fór að fríka út innra með mér, öskaði ekki og var ekki dónaleg en ég talaði hvasst við þau en þau harðneituðu að ræða þetta frekar við mig og sögðust tala við mig þegar ég væri komin úr flug­vélinni.“

Marissa var skilin eftir kjökrandi í tengi­göngunum eftir að hurðin á flug­vélinni lokaðist og flugvélin keyrði í burtu frá hliðinu og skildi hana eftir. Hún sagði við Mirror: „Ég byrjaði að gráta og hélt áfram að grátbiðja um áheyrn og fá einhvern til að taka síma minn og ræða við móður mína. En upp úr þurru byrjaði starfs­fólki að láta eins og ég væri ekki til, snéru bakinu að mér. Ég hef aldrei á ævi minni fundist ég jafn lítilsvirt. En svo kom starfs­fólk flug­vallarins og bað mig um að fara.“

Móðir Marissu, Aikwah bætti við: „Sem móðir er ég brjáluð og bara bókstaf­lega miður mín yfir því að ein kurteis beiðni hafi valdið því að henni var hent úr flug­vélinni er hún ætlaði aftur heim til Banda­ríkjanna. Hún bað ekki um að matseðlinum yrði breytt eða að flug­þjónarnir hættu að bjóða upp á hnetur, hún bað bara um tilkynningu.“

Marissu tókst að redda sér flugi fimm dögum síðar en ákvað að segja engum frá bráða­ofnæmi sínu. Þess í stað tók hún ofnæmis­penna sinn með sér og ofnæmislyf.

„Ég er hrædd að segja frá ofnæminu. Ég held að ég muni aldrei aftur fljúga utanlands aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum
Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“