Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Tónlistarheimurinn logar í deilum

Óútgefin verk líka í hættu

SZA hvetur listamenn til að vernda sköpunargáfu sína og menningararfleifð gegn ásælni gervigreindarfyrirtækja.
SZA hvetur lista­menn til að vernda sköp­un­ar­gáfu sína og menn­ing­ar­arf­leifð gegn ásælni gervi­greind­ar­fyr­ir­tækja. Mynd: Wikipedia

Tónlistar­iðnaðurinn stendur frammi fyrir mestu breytingum í áratugi. Nýjar uppljóstranir sýna að hundruð laga með stór­stjörnum á borð við SZA hafa verið notuð án leyfis til að þjálfa gervi­greindar­kerfi. Á meðan sum útgáfu­félög reyna að semja, krefjast listamenn harðari löggjafar og tala um menningarrán.

Deilan náði nýjum hæðum eftir að nýtt greiningar­tæki afhjúpaði að gervi­greindar­fyrirtæki höfðu notað 238 lög eftir bandarísku tónlistar­konuna SZA til að þjálfa tónlistar­líkön sín. Þar á meðal voru mörg óútgefin lög sem geymd höfðu verið á lokuðum svæðum.

SZA (borið fram „Sizza“) er lista­mannsnafn Solánu Imani Rowe, sem er ein áhrifa­mesta tónlistar­kona og laga­höfundur samtímans. Hún er sérstak­lega þekkt fyrir að endur­skilgreina nútíma R&B-tónlist með því að blanda henni saman við indie-rokk, popp og hip-hop.

SZA brást við af mikilli hörku á samfélags­miðlum og kallaði athæfið siðlaust og ófyrirgefanlegt. Beindi hún spjótum sínum sérstak­lega að tónlistar­manninum Diplo vegna tengsla hans við gervi­greindar­forritið Suno, en hann hafði áður valdið usla með því að segja lista­mönnum að „aðlagast eða gerast Uber-bílstjórar“. SZA vakti jafnframt athygli á því að brotin bitnuðu sérstak­lega illa á svörtum lista­mönnum. Þeir hefðu mótað dægur­menningu á heimsvísu en fengu minnstu lagalegu- og skapandi vernd.

„Ekki gefa frá ykkur ykkar Vibranium(e. „Do not give away your vibranium“),“ sagði lista­konan. Með þessu vísar hún í þekkta mynd­líkingu úr Marvel-ofur­hetju­heiminum og hvetur listamenn til að vernda sköpunar­gáfu sína og menningar­arfleifð gegn ásælni gervi­greindar­fyrirtækja.

Iðnaðurinn logar í deilum: Listamenn vs. gervigreind

Málið teygir sig langt út fyrir SZA því fjöldi annarra þekktra lista­manna hafa fundið verk sín í sama gagna­grunni.

Víðtæk mótmæli urðu þegar yfir 200 tónlistar­menn, þar á meðal Billie Eilish, Nicki Minaj og Katy Perry skrifuðu undir opið bréf þar sem óleyfileg gervi­greindar­þjálfun er sögð „árás á mennska sköpunar­gáfu“.

Þótt meirihluti fordæmi tæknina, kjósa sumir að nýta hana. Tónlistar­konan Grimes hefur boðið öðrum að nota gervi­greindar­útgáfu af rödd sinni gegn helmingi streymis­hagnaðar, og upptöku­stjórinn Timbaland telur gervi­greindina opna nýjar dyr í sköpun.

Dómsmál og klofningur meðal útgáfufyrirtækja

Samtök hljóðrita­iðnaðarins í Banda­ríkjunum (RIAA) standa í ströngum mála­ferlum gegn gervi­greindar­fyrir­tækjunum Suno og Udio. Útgáfu­fyrirtækin krefjast gríðarlegra skaðabóta vegna kerfis­bundins höfundar­réttarbrots, en Udio viðurkenndi nýverið að hafa halað niður tónlist af YouTube í stórum stíl til þess að þjálfa kerfi sín.

Hins vegar gætir ákveðins klofnings í bransanum:

Risar á borð við Warner Music Group og Universal Music Group hafa gert samkomulag við Suno og Udio. Þeir munu leyfa notkun á tónlist sinni gegn greiðslum og hlutafé í gervi­greindar­fyrir­tækjunum. Sony Music neitar að semja og berst áfram fyrir dómstólum. Málið veltur nú á því hvernig dómstólar skilgreina „sann­gjarna notkun“ (e. fair use) og hvort tækni­fyrirtækjum sé frjálst að surfa internetið eftir hugverkum manna.

Framtíð tónlistar gerð með gervi­greind

Lagaleg staða tónlistar gerð með gervi­greind er enn á gráu svæði. Grundvallar­reglan er sú að tónlist sem er 100% búin til af gervi­greind nýtur engrar höfundar­réttar­verndar, þar sem eingöngu mennsk sköpun er vernduð samkvæmt lögum.

Stærsta lagalega áskorunin snýr hins vegar að persónu­vernd og svokölluðum „deepfake“ lögum, þar sem raddir þekktra lista­manna eru falsaðar með gervi­greind. Banda­ríkin reyna nú að bregðast við þessu með svokölluðum NO FAKES lögum, en tónlistar­fólk um allan heim kallar eftir hraðari viðbrögðum stjórn­valda þar sem gervi­greindar­tónlist telur nú þegar tæp helming allra dagslegra upphleðslna á ákveðnum streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu