Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ofurhuggulegt hús í Hafnarfirði sett á sölu

Húsið var byggt árið 1929

Hverfisgata 46
Hverf­is­gata 46

Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús að Hverfis­götu 46 í Hafnar­firði hefur verið settá sölu. Eignin stendur á horni Hverfis­götu og Mjósunds, skammt frá miðbæ Hafnar­fjarðar, á eftir­sóttum stað með góðu aðgengi að þjónustu og útivistar­svæðum.

Húsið var byggt árið 1929 og er hannað af Guðjóni Arngríms­syni. Um er að ræða steypta eign sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og verið talsvert endurnýjuð. Meðal endurbóta má nefna nýtt eldhús frá árinu 2021, endurnýjun gólfefna að hluta og viðbót á svölum sem snúa út að baklóð.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er heildar­stærð eignarinnar 177,2 fermetrar, þar af er bílskúr 23,6 fermetrar. Húsið skiptist á þrjár hæðir auk riss og er skipulag þess bæði hagkvæmt og fjölskyldu­vænt.

Á aðalhæð er forstofa, gestasal­erni, gangur eða hol, eldhús og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu alrými með góðri birtu. Á efri hæð eru þrjú svefn­herbergi, þar af eitt sem hefur verið nýtt sem sjónvarps­herbergi, auk baðherbergis og aðgengis að risi þar sem vinnu­aðstaða er. Í kjallara er herbergi með sérinngangi, ásamt þvotta­húsi og geymslu.

Lóðin er skjólgóð og snýr vel við sólu. Frá svölum hússins er fallegt útsýni og næsta nágrenni býður upp á gott rými og rólegt umhverfi þrátt fyrir nálægð við miðbæinn.

Ásett verð eignarinnar er 145 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni