Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Líf tísti um Davíð Þór og eyddi svo: „Davíð Þór… er mjög triggeruð – Ég þekki svona ofbeldismenn“

Líf Magneudóttir.
Líf Magneu­dóttir. Mynd: Sigtryggur Ari

Borgar­fulltrúi VG, Líf Magneu­dóttir, lét í sér heyra á samfélags­miðli með nokkrum látum – en eyddi síðan færslunni, sem var svona:

„Davíð Þór… er mjög triggeruð. Ég þekki svona ofbeldis­menn, hef elskað þá og búið með þeim og skilið við þá. Megi þeir finna frið í sálinni,“ skrifaði Líf í gær.

Nú hefur Líf beðist afsökunar á þessum skrifum sínum og tilefni eyðslu færslunnar virðast vera það sem Davíð Þór sagði í viðtali moggann; ummæli sem komu mjög illa út, og Davíð Þór hefur fetað sömu slóð og Líf gerði; hann baðst afsökunar.

Séra Davíð Þór Jónsson

Mögulega er upphafið að þessum skeyta­sendingum í neikvæðum tón séu harkaleg orð sem Davíð Þór viðhafði um ríkis­stjórnina vegna stefnu hennar í málefnum flótta­manna, en eins og kunnugt er stendur til að vísa um 300 útlendingum úr landi á næstunni.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra vill senda 300 útlend­inga úr landi og á göt­una í Grikk­landi

Í Facebook-færslu sinni sagði Davíð Þór meðal annars að það væri til sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem seldi sálu sína fyrir völd; og uppskar áminningu frá biskupi vegna ummælanna. Síðan þá hafa fjölmargir komið Davíð Þór til varnar; sagt hann hafa haft fullt tilefni til skrifanna.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup áminnti séra Davíð Þór vegna ummæla sinna

Í kringum allt þetta havarí hefur það verið dregið fram í dags­ljósið að Davíð Þór og Katrín Jakobs­dóttir voru í sambúð í mörg ár. Davíð Þór ræddi málið í viðtali við moggann, og um  ástar­samband hans við forsætis­ráðherra:

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

„Umræðan ætti að snú­ast um það hvernig við sem sam­fé­lag kom­um fram við okk­ar minnstu bræður og syst­ur. Ef að ein­hverj­um finnst að sú umræða eigi að snú­ast um það hvernig til­finn­inga­lífi mínu var háttað fyr­ir tuttugu árum þá vit­um við hversu stór sál­in í því fólki er. Þar fyrir utan þá bjó ég aldrei með forsætis­ráðherra Íslands; það var allt önnur manneskja.“

Eftir þessi ummæli sá Davíð Þór ástæðu til að biðjast afsökunar:

„Mig langar að biðjast afsökunar á orðum sem höfð eru eftir mér á mbl.is. Blaða­maður hringdi í mig þar sem ég var önnum kafinn við að koma börnum mínum í háttinn. Við töluðum saman í tvær mínútur. Í lok spjallsins fékk ég spurningu sem ég taldi ekki koma málinu neitt við og lét eina vanhugsaða setningu falla í kjölfarið. Auðvitað var henni slegið upp í fyrirsögn en ekki það sem ég lagði áherslu á í okkar stutta spjalli að ætti að vera það sem málið snerist um. Ég iðrast þessara orða og tek þau hér með aftur. Umræðan á ekki að snúast um persónur, en ég lét blaða­manninn slá mig út af laginu og niður á það plan.“

Ekki er loku fyrir það skotið að þessi ummæli hafi verið tilefni skrifa Lífar um Davíð Þór í gær.

Og nú hefur Líf líka beðið afsökunar á orðum sínum um Davíð Þór:

„Eyddi tísti sem var mjög illa tímasett … biðst afsökunar á því.“

Þá kemur upp sú pæling sem vefurinn DV veltir fyrir sér lok greinar sinnar um þetta sama mál:

„Sú spurning vaknar hvort allar tíma­setningar séu ekki slæmar fyrir það að fullyrða að Davíð Þór Jónsson sé ofbeldis­maður“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá