Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Uppgjör Hjalta Björnssonar fararstjóra: „Þreifaði á manninum og hélt að hann væri dáinn“

„Á leiðinni kom maður hrópandi á móti hópnum. Hann hafði ætlað að fara á bak við stein að ganga örna sinna en þá lá þar meðvitundar­laus maður sem hafði leitað vars,“ segir Hjalti Björnsson í hlað­varpinu Mann­lífinu. Hann rifjar upp skelfilegt ástand sem ríkti á Lauga­veginum í sumar þegar óveður skall á og fjöldi manns lenti í neyð.

„Það byrjaði að streyma að fleira fólk fyrir utan okkur. Fyrst þegar ég þreifaði á manninum hélt ég að hann væri dáinn. Hann var svo svakalega kaldur og lífvana. Ég er ekki læknir og get ekki úrskurðað fólk látið. Það eru bara læknar sem gera það. En ég var sannærður um að svo væri. Ég hafði aldrei séð svona lífvana einstakling.“

Hjalti rifjar upp ferðir sínar á fjöllum sem farar­stjóri undan­farin ár.Um áratuga­skeið starfaði hann sem dagskrár­stjóri á Vogi og átti þar farsælan feril. Einn dag var hann svo rekinn.

Skjólstæðingar Hjalta í gegnum áratugina eru margir og er hann spurður hvað sé það sorglegasta sem hann hefur upplifað varðandi þá.

„Ég man sérstak­lega eftir ungum manni sem kom í meðferð og gekk illa. Hann kom nokkrum sinnum til okkar og þá var ég á Staðar­felli í Dölum.“

Hjalti segir að maðurinn hafi orðið edrú. Hann fór í háskóla og lauk námi. „Mjög greindur maður og flottur. Svo heyrði ég einn daginn að hann væri látinn. Hann hafði þá fallið og fyrirfór sér. Það gerist stundum þegar fólk er að falla í þessum sjúkdómi að örvæntingin er svo mikil og sérstak­lega þegar um er að ræða ungt fólk og þá grípur það til örþrifa­ráða. Og hann sá enga aðra leið út úr þessu.“

Hjalti segist hafa orðið svolítið hissa á viðbrögðum sínum en dauði mannsins hafði mikil áhrif á hann. „Mér fannst þetta ofboðs­lega sorglegt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt