Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Daði Einarsson Bafta-verðlaunahafi: „Vinnustaðurinn minn er Disney Studios“

„Þessi verðlaun eru fyrst og fremst gríðar­lega mikið hrós og viðurkenning fyrir okkur. Witcher-serían er stútfull af skemmtilegum og stórum áskorunum fyrir „visual effects“ stjórn­anda þannig að þetta var mjög gefandi og krefjandi bæði kreatíft og tæknilega. Að vinna alla þessa vinnu í Covid gerði hlutina mun flóknari og eitt af því sem stendur upp úr er hvað „visual effects“-bransinn var ótrúlega fljótur að aðlagast þessum aðstæðum. Langflestir sem unnu að framkvæmd myndbrellnana gerðu það að heiman en ekki á skrif­stofu.

Fyrir mig og fyrir­tækin sem unnu að Witcher er þetta mikill gæða­stimpill og gefur til kynna að okkur sé treystandi fyrir að hanna, skipuleggja og framkvæma mynd­brellur í hæsta gæða­flokki,“ segir Daði Einarsson sem fyrr í vor hlaut BAFTA-verðlaun fyr­ir tækni­brell­ur í Net­flix-þátt­un­um The Witcher.

Skrímsli, ísbirnir, Harry Potter…

Hvað einkennir verkin hans almennt svo sem hvað varðar stíl og áherslur?

„Ég hef komið víða við hvað stíl varðar. Fantasíur, skrímsli, myndir sem gerast úti í geimi, á sjó og hæsta fjalli jarðar þannig að það er erfitt að benda á ákveðinn stíl. Ég nálgast verkin alltaf á svipaðan máta. Ég set góða bíómynda­tónlist í græjurnar, les handritið sem ég er að fara að vinna að og ímynda mér myndræna útgáfu af því sem ég les. Sé það fyrir mér eins og fullkomna full­kláraða bíómynd. Svo vinn ég bara aftur á bak þaðan. Set á mig tækni­hattinn og brýt niður hvaða aðferða­fræði þarf til að taka upp atriðin og svo hvað þarf að gera til að skapa mynd­brellurnar. Oftast geri ég grófa útgáfu af atriðunum í tölvu til að kynna og þróa hugmyndina með leik­stjóra og fram­leiðendum. Þetta er ótrúlega skemmtilegt og gefandi ferli og sérstak­lega gaman að bera saman grunn­hugmyndina við loka­atriðin þegar myndin er full­kláruð.“

Golden Compass vann Óskarinn það árið fyrir mynd­brellur.

Þegar Daði er spurður hvað standi upp úr á ferlinum segir hann að sér hafi fundist vera mjög gaman að vinna við The Golden Compass þar sem hann stýrði öllum atriðunum með talandi ísbjörnunum sem eru stór hluti af sögunni. „Ég las bókina áður en ég fékk boðið um að taka verkefnið að mér og í sögunni finnum við aðal­ísbjörninn þar sem hann er í óreglu og hangir í húsasundi bak við knæpu sem heitir „Einarsson’s Bar“. Mér fannst það merki um að ég ætti að segja já við þessu. Stuttu seinna var ég kominn á settið fyrir framan barinn með mínu nafni og brosti út í annað. Golden Compass vann Óskarinn það árið fyrir mynd­brellur.“

Harry Potter 2 var mikil upplifun snemma á ferlinum. „Ótrúlega stór og mikil fram­leiðsla með lygilega fallegum og stórum leik­myndum. Þetta var hálf­partinn eins og að vera í þessum heimi á meðan á tökum stóð. Það var gaman að ráfa þar um og fá að taka þátt í að skapa svona stórt augnablik í kvik­mynda­sögunni.

Gravity var magnað verkefni og ofboðs­lega áhugavert að vinna náið með Alfonso Cuarón leik­stjóra. Við vorum tiltölu­lega lítill hópur sem ég stýrði en við hönnuðum, teiknuðum og klipptum alla myndina með honum til þess að undirbúa tökurnar á andlitum leik­aranna sem síðar yrði skeytt inn í tölvu­teiknuð atriði út frá okkar vinnu.

Eitt sinn vorum við í þyrlu að fljúga í kringum Everest rétt við tind­inn.

Everest er líklega erfiðasta verkefni sem ég hef gert og kannski ýktasta dæmi þess að ímynda sér fullkomna útgáfu af því sem maður les og vinna svo til baka þaðan. Það var ofboðs­lega erfitt að klára þá mynd og að klífa það fræga fjall fannst mér ágætis mynd­líking. Það voru líka gríðarleg forréttindi að taka þátt í tökunum. Eitt sinn vorum við í þyrlu að fljúga í kringum Everest rétt við tindinn. Við flugum marga hringi um fjallið eins hátt og þyrlan komst að mynda efni til að styðja við mynd­brellurnar okkar, lentum í grunn­búðum, skoðuðum okkur um og ég myndaði allt sem ég gat. Það var ótrúleg upplifun.“

Disney Studios

Daði er núna í Los Angeles að vinna fyrir Marvel að stýra mynd­brellum í sjónvarps­seríu sem kemur út seint í sumar. „Minn vinnu­staður er Disney Studios í Burbank þar sem allar gömlu teiknimyndirnar voru gerðar og hér bókstaf­lega drýpur sagan af öllu.

Þetta eru níu þættir og lang­stærsta streymissería sem Marvel hefur framleitt. Það er mjög áhugavert og skemmtilegt að kynnast þessum fram­leiðendum og fá að rýna í þennan stóra og djúpa heim. Við erum á reglu­legum „zoom-fundum“ þar sem við horfum á nýjustu útgáfur af þáttum með klippurum, fram­leiðendum og yfir­manneskjum Marvel. Svo er farið yfir allar nótur og punkta og málin rædd í fram­haldinu. Það er magnað að fá að hlera og taka þátt í þeim umræðum og drekka í sig þessa miklu þekkingu og reynslu.“

Súrsætt en fallegt ferli

Hvers vegna fór Daði upphaf­lega í þessa grein. Þennan heim. Og hvað heillar hann við hann?

„Ég hálf­partinn ólst upp við þetta í London þar sem móðir mín var teiknimynda­gerðakona. Hún vann við að teikna atriði í myndum á borð við Who Framed Roger Rabbit, Space Jam og Highlander og ég horfði oft yfir öxlina á henni eða fékk að hanga í stúdíóum þar sem hún var að vinna. Þótt ég hafi ekki beinlínis planað að vinna við þetta þá hafði ég ofboðs­lega mikinn áhuga á kvik­myndum, að teikna og að skapa. Svo rétt um tvítugt bauðst mér tækifæri að vinna með vinum mínum sem voru að stofna tölvu­fyrirtækið OZ. Þar fékk ég aðgang að sömu tölvum og hugbúnaði sem var notaður til að gera fyrstu bylgju af tölvu­teiknuðum mynd­brellum sem við horfðum gapandi á í bíói: The Abyss, Terminator 2 og ekki síst Jurassic Park.

Reynir á sköp­un­ar­gáfu, tækni­þekk­ingu, mann­leg sam­skipti, þor og úthald.

Það sem heillar mig við þetta starf er sköpunin, að túlka sögur frá blaði og skapa það sem ég ímynda mér þegar ég les. Að kynnast fólki og fara í ferðalag saman og að búa til eitthvað skemmtilegt og fallegt. Hvert verkefni er ákveðið ferðalag með upphafi, miðju og endir. Oft kynnist maður fólki í byrjun og skilur við það við verklok vitandi að þau verða nátengd manni um ókomna tíð. Þetta er svona hálf­partinn eins og byrja í nýjum mennta­skóla, kynnast öllum og útskrifast svo og kveðja alla. Súrsætt en fallegt ferli.

Svo er þetta mjög krefjandi starf sem reynir á sköpunar­gáfu, tækni­þekkingu, mannleg samskipti, þor og úthald. Þetta er langt frá því að vera auðvelt en það er líklega eitt af því sem gerir það svo gefandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá