Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Leggja til nýtt frumvarp vegna fjöldabrottvísunar: „Pólitísk ákvörðun stjórnvalda“

Fjórir flokkar á Alþingi hafa í sameiningu lagt fram frumvarp sem er ætlað að bregðast við yfir­vofandi fjölda­brottvísun einstaklinga sem fjallað hefur verið um undan­farið. RÚV greinir frá þessu.

Flokkarnir sem standa að frum­varpinu eru þing­flokkur Samfylkingar, Flokks fólksins, Pírata og Viðreisnar.

Tillaga flokkanna snýr að nýju bráðabirgðarákvæði sem felur í sér að umsækjendur um alþjóð­lega vernd verði ekki sjálfir látnir bera ábyrgð á þeim töfum sem urðu á máls­meðferð þeirra vegna heims­faraldurs Covid-19. Þar með skuli umsóknir þeirra einstaklinga sem hafi verið hér í tólf mánuði eða lengur teknar til efnislegrar meðferðar.

Auk þessa segir í tilkynningu frá flokkunum fjórum að lagt sé til að umsækjendur sem sóttu um vernd hér á landi í miðjum heims­faraldri og hafa verið á landinu í 18 mánuði eða lengur, verði veitt dvalar­leyfi á grund­velli mannúðar­sjónarmiða.

„Fjölda­brott­vísunin sem hefur verið í undir­búningi af hálfu íslenskra stjórn­valda er ekki lagaleg nauðsyn, heldur yrði slík framkvæmd pólitísk ákvörðun stjórn­valda,“ segir í tilkynningu flokkanna.

Í tilkynningunni segir ennfremur að með því að leggja fram frum­varpið sé lögð til almenn lausn fyrir þennan tiltekna hóp sem ákvæðið á við. Um sé að ræða einstaka aðgerð líkt og þekkist í fjölmörgum öðrum málum vegna heims­faraldurs Covid-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá