Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hér eru nöfn stelpnanna okkar sem fara á HM – Ísland í sterkum riðli!

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu að fagna sigri árið 2019
Íslenska kvenna­lands­liðið í knatt­spyrnu að fagna sigri árið 2019

Þorsteinn Halldórsson landsliðs­þjálfari kvenna­lands­liðsins í fótbolta tilkynnti í dag hópinn sem fer á Evrópu­mótið í knatt­spyrnu 2022. Mótið fer fram í Englandi í sumar en Þorsteinn valdi 23 leikmenn í hópinn.

Þetta er í fjórða sinn í sumar þar sem íslenska kvenna­landsliðið leikur á Evrópu­mótinu í knatt­spyrnu. Liðið hefur áður farið á mótin 2009, 2013 og 2017. Ísland þykir vera í nokkuð sterkum riðli en Belgar, Frakkar og Ítalir eru með Íslandi í D riðli.

Mótið fer fram á Englandi en Stelpurnar okkar spila fyrstu tvo leiki sína Manchester City Academy Stadium í Manchester. Því næst halda þær til New York Stadium sem er þó í Rotherham.

Þeir leikmenn í hópnum sem hafa skorað flest mörk fyrir lands­liðið eru Dagný Brynjars­dóttir (34 mörk – 101 leikir), Sara Björk (22 mörk – 138 leikir) og Elín Metta Jensen (16 mörk – 59 leikir). Leikja­hæsti leikmaður hópsins er Sara Björk Gunnars­dóttir með 138 lands­leiki alls en á eftir henni kemur Hallbera Gísla­dóttir með 127 leiki.

Íslenska kvenna­landsliðið í knatt­spyrnu hefur verið að gera það gott og mikill áhugi er á liðinu. Sá leikmaður sem fylgst verður vel með er Sveindís Jane Jóns­dóttir. Sveindís er 21 árs og hefur spilað vel með stórliði Wolfsburg þegar hún hefur spilað – alls 3 mörk á einungis 303 mínútum í deild. Hún hefur nú þegar skorað sex mörk í 18 lands­leikjum fyrir Ísland.

Hópurinn:

Framherjar:

Amanda Andra­dóttir – Kristianstads DFF

Berglind Björg Þorvalds­dóttir – Brann

Agla María Alberts­dóttir – Häcken

Elín Metta Jensen – Valur

Svava Rós Guðmunds­dóttir – Brann

Sveindís Jane Jóns­dóttir – VfL Wolfsburg

Markmenn:

Sandra Sigurðar­dóttir – Valur

Cecilía Rán Rúnars­dóttir – FC Bayern München

Telma Ívars­dóttir – Breiða­blik

Miðjumenn:

Sara Björk Gunnars­dóttir – Olympique Lyonnais

Dagný Brynjars­dóttir – West Ham United

Gunnhildur Yrsa Jóns­dóttir – Orlando Pride

Alexandra Jóhanns­dóttir – Eintracht Frankfurt

Karólína Lea Vilhjálms­dóttir – FC Bayern München

Selma Sól Magnúsdóttir – Rosenborg

Varnar­menn:

Hallbera Guðný Gísla­dóttir – IFK Kalmar

Glódís Perla Viggós­dóttir – FC Bayern München

Sif Atla­dóttir – Selfoss

Elísa Viðars­dóttir – Valur

Ingibjörg Sigurðar­dóttir – Vålerenga

Guðrún Arnar­dóttir – FC Rosengård

Guðný Árna­dóttir – A.C. Milan

Áslaug Munda Gunnlaugs­dóttir – Breiða­blik

Leikir Íslands á mótinu:

Sunnu­dagur 10. júlí – Belgía gegn Íslandi. 16.00

Fimmtudagur 14. júlí – Ítalía gegn Íslandi – 16.00

Mánudagur 18. júlí – Frakkland gegn Íslandi – 19.00

Þorsteinn mun að endingu staðfesta loka­leik­mannahópinn sinn fyrir mótið 28. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá