Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Dagur eða Kristrún einu sem koma til greina í formanninn: „Síðasta tækifærið til alvöru sóknar“

Allt virðist stefna í að það verði Kristrún Frosta­dóttir þingkona og Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri sem munu keppast um að taka við af Loga Einars­syni, fráfar­andi formanni Samfylkingarinnar. Logi greindi frá því í dag að hann hyggðist segja þetta gott og hætta formennsku í haust. Staða þeirra beggja er sterk innan flokksins og því mjög tvísýnt hver hefði betur ef þau myndu bæði sækast eftir stólnum. Líklegast er að Dagur muni ekki sækjast eftir formennsku ef Kristrún gerir það einnig. Stóra spurningin sé því hvort hún taki slaginn.

Björn Birgisson, þjóðfélags­rýnir í Grindavík, segir á Facebook að valið á milli þeirra tveggja verði líklega mjög afdrifa­mikið. „Mun Samfylkingin láta að sér kveða eins og að var stefnt með sameiningunni um aldamótin? Með vali nýs formanns Samfylkingarinnar í haust gefst flokknum síðasta tækifærið til alvöru sóknar í stjórn­málum landsins,“ skrifar Björn og bendir á að þau spegli hvort annað. Þá á hann við að Kristrún sé ferskur andblær en á móti hafi hún litla reynslu. Þessu er þveröfugt farið hjá Degi, næg er reynslan en fersk­leikinn ekki mikill.

Blaða­maður spurði Björn því hvað fleira aðgreindi þau, um hvað valið snerist fyrir flokks­menn. Það stóð ekki á svörunum.  Björn segir þau bæði hafa mikla styrki en líka nokkra veikleika. Hann segist örlítið efins um að þau munu berjast um formennskuna.

„Fari svo að Dagur og Kristrún berjist um formennskuna í Samfylkingunni – sem er álíka líklegt og það er ólíklegt – þá tel ég líklegra að Kristrún hafi sigur. Nýja­brumið heillar oft meira,“ segir Björn.

Björn segir styrk­leika Dags felast í því að hann sé  „mjög vinsæll maður sem hefur haldið Samfylkingunni í Reykjavík í um 25- 30% á sama tíma og flokkurinn berst við 10% þröskuldinn á landsvísu. Alþýðlegur og elsku­legur maður. Aðrir oddvitar flokksins komast ekki með tærnar í námunda við svæðið þar sem Dagur hefur hælana. Ef reynsla er styrk­leiki þá býr Dagur vel að henni – hefur lagt 16 farsæl ár að baki í borgar­stjórn og hefur sýnt að hann hefur gott pólitískt nef. Hann veðjaði til dæmis hárrétt á samstarfið við Besta flokkinn og Jón Gnarr og naut þess að stjórna borginni með lagni úr aftur­sætinu!“

Dagur hafi þó veikleika, þó misalvarlegir séu. „Hann er karlmaður á tíma þar sem konur eru að leggja allt undir sig! Hafandi fylgst með störfum Dags úr fjarlægð þessi 16 ár sem hann hefur setið í borgar­stjórninni hefur mér ekki tekist að greina neina áberandi veikleika – þvert á móti. Hins vegar kann það að reynast honum fjötur um fót að hafa ungur gefið sig að borgar­málunum og verið lengi í sviðs­ljósinu. Úthald kjósenda gagnvart fram­bjóðendum er miklu minna en fram­bjóðendanna sjálfra. Það er miklu líklegra að kjósendur séu eins og fólk í fram­hjáhaldi – á sama tíma og fram­bjóðendur halda tryggð við flokkinn sinn – komi upp einhver þreyta í sambandinu!“

Líkt og áður þá er þessu öfugt farið hjá Krisrúnu. Björn segir um styrk­leika hennar: „Kristrún – Styrk­leiki. Hún er kona, metnaðar­full og hæfileikarík kona. Sá tími er liðinn að þær eigi erfitt uppdráttar í pólitík, séu þær með metnaðar átta­vitann rétt stilltan. Hún er vel menntaður hagfræðingur og talar um fjármál ríkisins og fjármál almennt eins og hún hafi alist upp í þeim. Þar er hún á heima­velli og ber af öðrum þing­mönnum, sem margir hverjir hafa lítið sem ekkert vit á fjármálum, utan þess að vita hver laun þeirra eru. Þekking hennar á fjármálum er vís til að tengja hana og flokkinn betur við atvinnu­lífið í landinu, en þar á Samfylkingin nánast engar tengingar nú, en verður að ná þeim ef hún vill vaxa úr smáflokki í ráðandi afl. Hérlendis ná engir flokkar almennilegri fótfestu ef þeir eru stöðugt að tala atvinnu­lífið niður. Kristrún Frosta­dóttir skilur þá staðreynd mætavel.“

Hann segir veikleika hennar vera að fyrst og fremst reynslu­leysi enda stjórnmála­ferill hennar stuttur. „Hún er svo ný og fersk í stjórn­málunum að hún hefur ekki náð að sýna neinar veikar hliðar. Virðist vera ákveðin og rökviss. Margir líta á reynslu­leysi sem veikleika­merki, en reynslan hefur þó sýnt að fjölmörgum stjórn­málamönnum hefur hreinlega verið hent út í djúpu laugina – og ekkert staðið sig verr en reynslu­boltarnir við það að klóra sig að bakkanum!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá