Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Manndráp í Hafnarfirði: Stakk sambýlismann sinn- Þyngsti dómur yfir kvenmanni á Íslandi

Kona var í Héraðs­dómi Reykjaness dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið sambýlis­manni sínum að bana á heimili þeirra við Skúla­skeið í Hafnar­firði 14. febrúar 2015.

Banamein mannsins, sem var fæddur árið 1974, var stungusár. Konan var grunuð um að hafa stungið manninn einni stungu hægra megin þannig að hnífurinn gekk inn í hægra lunga hans með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af völdum blæðingar úr lunganu, að því er segir í ákæru. Talið er að maðurinn hafi látist á milli klukkan 12 og 14 þennan dag.

Konan neitaði sök við þing­festingu málsins í maí sama ár. Við aðal­meðferðina bar hún fyrir sig minnis­leysi, sagðist hafa drukkið eitthvað af áfengi morguninn örlaga­ríka og sagðist því ekki geta gert sér grein fyrir því sem átti sér stað í íbúðinni.

Þreif blóðið og skipti um föt áður en hún hringdi í dóttur sína

Fyrir lá í málinu að konan hefði farið, ásamt manninum, með leigubíl í Bónus í Hafnar­firði upp úr klukkan ellefu um morguninn. Hún kvaðst þó ekki muna eftir því og taldi sig hafa sofið til hádegis, eftir að hafa tilkynnt forföll í vinnu um klukkan sex. Er hún hafi vaknað hafi hún talið manninn vera sofandi. Hún hafi þá fljótlega gert sér grein fyrir að ekki væri allt með felldu og séð örlítið blóð á brjóst­kassa mannsins og enni. Hún hafi þrifið blóðið og skipt um föt á manninum, áður en hún hringdi í dóttur sína og óskað eftir aðstoð hennar. Í kjölfarið hafi verið hringt á lögreglu.

Geðlæknir sem bar vitni í málinu og framkvæmdi sálfræðimat á Danutu sagði ekkert benda til þess að hún eigi við einhver geðræn vandamál að stríða, né siðblindu. Hún telji sig ekki færa um slíkan verknað, en þó telji sig ábyrga fyrir honum.

Móðir og faðir hins látna fóru hvort um sig fram á þrjár milljónir króna í miska­bætur í málinu. Móðurinni voru dæmdar 1.386.000 krónur í bætur og föðurnum 1,1 milljónir króna.

Konan á sextugsaldri

Hæstirétt­ur staðfest dóm Héraðs­dóms Reykja­ness sem dæmdi konuna á sex­tugs­aldri í 16 ára fang­elsi fyr­ir að hafa banað sam­búðar­manni sín­um.

Konan var ákærð fyr­ir mann­dráp með því að hafa veist að sam­búðar­manni sín­um með hnífi með þeim af­leiðing­um að hann hlaut bana af. Talið var að þótt mik­il áfeng­isneysla kon­unn­ar kynni að hafa verið meg­in­or­sök verknaðar henn­ar, sem og at­hafna henn­ar fyrst eft­ir hann, hefði það ekki áhrif á ákvörðun refs­ing­ar fyr­ir brotið, sbr. Því var hún dæmd til að sæta fang­elsi í 16 ár og greiða for­eldr­um manns­ins skaðabæt­ur.

Foreldrar mannsins dæmd miskabætur

Í dómi Héraðs­dóms Reykja­ness, sem Hæstirétt­ur staðfesti, seg­ir m.a., að dóm­ur­inn teldi at­b­urðarrás­ina um morg­un­inn vera afar óljósa. Hins veg­ar taldi dóm­ur­inn að sá vafi sem léki á um at­b­urðarrás­ina væri hverf­andi og teld­ist því sannað svo ekki verði vé­fengt með skyn­sam­leg­um rök­um að konan hefði veist að sam­býl­is­manni sín­um með hnífi og stungið hann einni stungu í brjóstið þannig að hníf­ur­inn gekk inn í hægra lunga hans með þeim af­leiðing­um að hann hlaut bana af völd­um blæðing­ar úr lung­anu.

Hún var dæmd til að greiða 3,8 milljónir króna í máls­kostnað. Foreldrar mannsins fóru fram á þrjár milljónir króna hvor í miska­bætur. Móður mannsins voru dæmdar tæpar 1,4 milljónir króna í miska­bætur og föður hans 1,1 milljón.

Heimildir:

Ásrún Brynja Ingvars­dóttir. 10. júlí. 2015. 16 ára fangelsi fyrir manndráp. RÚV.

Innlent. 3.desember. 2015. 16 ára dómur fyrir manndráp. MBL.

Sunna Karen Sigurþórs­dóttir. 10. júlí 2015. Manndráp í Hafnar­firði: Dæmd í 16 ára fangelsi. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá