Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skotmaðurinn í gæsluvarðhald á lokaðri geðdeild – Birti óhugnanlegt myndband

Byssumaðurinn handtekinn.
Byssu­mað­ur­inn hand­tek­inn. Mynd: Twitter

Karl­maðurinn sem grunaður er um skotárás í verslunar­miðstöðinni Field’s í Kaupmanna­höfn í gær, þar sem þrír létust, hefur verið úrskurðaður í gæslu­varðhald til 28. júlí, eða næstu 24 daga. Þetta kemur fram á RÚV en lögreglan í Kaupmanna­höfn greindi frá þessu upp úr hádegi.

Maðurinn sem um ræðir er 22 ára gamall Dani og á blaðamanna­fundi dönsku lögreglunnar í dag kom fram að hann ætti sögu um andleg veikindi. Einnig var sagt frá því að hann hefði komist í kast við lögin áður.

Hinn grunaði er sagður aðhyllast hægri öfga­skoðanir og hefur því sumstaðar verið haldið á lofti að um haturs­glæp hafi verið að ræða. Lögregla hefur þó ekki gefið neitt slíkt út. Þó hefur komið fram að skot­maðurinn virðist ekki hafa valið skotmörk sín sérstak­lega, heldur hafi hann skotið af handahófi allt sem fyrir var.

Maðurinn er sagður hafa birt myndband á Youtube-aðgangi sínum daginn áður en hann framdi ódæðið sem sýnir hann miða riffli og skamm­byssum að eigin höfði og taka í gikkinn nokkrum sinnum. Um sjö mínútna langt myndband er að ræða með titlinum „Mér er alveg sama“ (e. „I don’t care“). Youtube-síða hans hefur nú verið tekin niður.

Maðurinn verður vistaður á lokaðri réttar­geðdeild meðan á gæslu­varðhaldinu stendur. Hann kom fyrir dómara fyrir luktum dyrum, en fjöl­miðlum var hleypt inn þegar úrskurður var kveðinn upp. Úrskurður dómarans byggði á gögnum ákæru­valdsins, sem voru meðal annars myndbönd og vitnis­burður fólks sem varð vitni að árásinni.

Gögnin sem lögð voru fram þykja styðja þá skoðun ákæru­valdsins að maðurinn sé hættu­legur samfélaginu og gæti framið sambærilega glæpi og hann er nú grunaður um, fengi hann að ganga laus. Hann er sömuleiðis talinn geta tafið fyrir rannsókn málsins með því að eyði­leggja sönnunar­gögn eða fela þau.

Þrír einstaklingar létust í skot­árásinni og fjórir liggja nú þungt haldnir á sjúkra­húsi. Tæplega 30 einstaklingar særðust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn