Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Önnu Kristjáns mjög brugðið er vaknaði á Tenerife: „Um hádegið var hann eitthvað farinn að róast“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Kristjáns­dóttir, vélstjóri á eftir­launum sem búsett er á Tenerife, átti fótum sínum fjör að launa í gærmorgun er hún vaknaði í íbúð sinni. Hún er dugleg að senda frá sér dagbókar­færslur um lífið á eyjunni fögru og segir frá því í nýjustu færslunni hversu henni var brugðið í gær. Anna greip til eitur­brúsa og fægi­skóflu í barátt­unni við hinn óboðna gest.Anna hefur nú búið í nokkur ár á Tenerife og hefur orðið vör við talsvert af kakka­lökkum á eyjunni, m.a. í þeim íbúðum sem hún hefur búið í. Með því að loka öllum gluggum og dyrum hefur hún náð góðum árangri í barátt­unni við meindýrin.En um helgina gerði Anna afdrifarík mistök og lýsir því á Facebook:„Í fyrra­kvöld urðu mér á þau mistök þegar ég skrapp á flug­völlinn að loka ekki svala­dyrunum er ég fór af stað, enda sá ég fram á það að vera komin til baka fyrir myrkur. Ferðin á flug­völlinn tók hinsvegar fjóra tíma og löngu komið myrkur er ég loksins komst heim,“ segir hún og heldur áfram: „Er ég vaknaði í gærmorgun og opnaði út á svalir, kom stór og pattaralegur kakka­lakki út undan stofu­sófanum og vildi komast út. Eitthvað fórst honum óhöndug­lega tilraunin til að komast yfir dyra­sleðann og féll við það á bakið. Þótt ég hafi þegar verið komin með kakkalakka­eitur í hönd ákvað ég að bíða með að sálga kvikindinu og horfði á hann sprikl­andi út öllum öngum þar sem hann lá á bakinu. Um hádegið var hann eitthvað farinn að róast og lá eins og dauður á bakinu, en þá hafði ég ekki lengur tíma fyrir neina leiki, sótti fægi­skófluna, sópaði greyinu upp í hana og henti yfir á svalir þeirrar sem mér datt helst í hug að hefði gaman af kakka­lökkum, þeirrar frönsku. (Sic!) Er ég kom heim aftur tveimur tímum síðar var kakka­lakkinn horfinn, en ekki veit ég hvort sú franska hafi tekið hann að sér eða hvort kakka­lakkinn hafi farið til þeirrar frönsku óumbeðinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt