Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Konur fá leyfi frá vinnu ef þær þjást af alvarlegum tíðaverkjum: „Túr verður ekki leng­ur bann­orð“

Rík­is­stjórn Spán­ar samþykkti á þriðju­dag frum­varp sem veit­ir kon­um rétt á því að fá greitt leyfi þjá­ist þær af al­var­leg­um tíðaverkj­um. Er þetta fyrsta slíka frum­varpið í Evr­ópu sem nær fram að ganga sam­kvæmt heim­ild­um AFP-frétta­stof­unn­ar.

Frum­varpið veit­ir starfs­fólki sem upp­lif­ir sárs­auka vegna tíða eins mikið frí og þarf þar sem al­manna­trygg­inga­kerfi rík­is­ins tek­ur upp veik­inda­leyfið en ekki vinnu­veit­end­ur. Líkt og með launað leyfi af öðrum heilsu­fars­ástæðum þarf lækn­ir að skrifa upp á tíma­bundna óvinnu­færni.

Laga­til­lög­urn­ar eiga þó eft­ir að hljóta samþykki þings­ins og ekki er bú­ist við að frum­varpið verði borið upp til at­kvæða­greiðslu í þing­inu fyrr en eft­ir marga mánuði. Minni­hluta­sam­steypu­stjórn Pedro Sanchez hef­ur gert kven­rétt­indi að bar­áttu­máli sínu en ekki er vitað hvort frum­varpið hafi næg­an stuðning inn­an þings­ins til að verða að lög­um.

Telja frum­varpið stuðla að ráðningu karla

Til­lag­an hef­ur klofið sam­steypu­stjórn­ina og jafn­vel klofið verka­lýðsfé­lög. Marg­ir Spán­verj­ar telja að frum­varpið geti stuðlað að því að mörg fyr­ir­tæki ráði karla frek­ar en kon­ur til starfa á sína vinnu­staði og frum­varpið muni stimpla kon­ur út af vinnu­markaðnum.

Jafn­rétt­is­mála­ráðherra Spán­ar, Irene Montero, seg­ir að lög­in muni viður­kenna tíðir sem heilsu­far­svanda­mál en þeim hafi að mestu verið sópað und­ir teppið fram að þessu. „Túr verður ekki leng­ur bann­orð,“ sagði hún á blaða­manna­fundi eft­ir að rík­is­stjórn­in samþykkti frum­varpið.

Eins og er er aðeins boðið upp á tíðal­eyfi í fá­ein­um lönd­um í heim­in­um, svo sem í Suður-Kór­eu og Indó­nes­íu, en hvergi í Evr­ópu. „Við verðum fyrsta landið í Evr­ópu til að taka upp tíma­bundið veik­inda­leyfi sem er að fullu fjár­magnað af rík­inu fyr­ir sárs­auka­full og óvinnu­fær tíma­bil,“ bætti hún við.

Hluti af stærra sam­hengi

Spænska lög­gjöf­in er hluti af mun víðtæk­ari um­bót­um á frjó­sem­is­heil­brigði og mun fela í sér breyt­ing­ar á fóst­ur­eyðinga­lög­um lands­ins. Það mun binda enda á kröf­una um að börn á aldr­in­um 16 og 17 ára fái samþykki for­eldra áður en þung­un er slit­in og fel­ur í sér ráðstaf­an­ir til að auka aðgengi að fóst­ur­eyðing­um á einka­sjúkra­hús­um.

Spán­verj­ar af­glæpa­væddu fóst­ur­eyðing­ar árið 1985 í til­fell­um þegar um kyn­ferðis­brot var að ræða  eða ef heilsu barns eða móður var ógnað.  Árið 2010 var gild­is­svið lag­anna víkkað og náði þá einnig til þess að leyfa fóst­ur­eyðing­ar sam­kvæmt beiðni á fyrstu 14 vik­um meðgöngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall