Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hörður Torfa kveður Megas

„Frelsið hefur sitt verð“

Megas
Megas Hörður minn­ist Megasar Mynd: -

Söngva­skáldið Hörður Torfason minnist vinar síns, Magnúsar Þórs Jónssonar, Megasar, í áhrifa­mikilli færslu sem hann birti á Facebook í gær. Þar rifjar hann upp áratuga­langa vináttu þeirra og segir að þeir hafi báðir þurft að takast á við þá hlið frægðarinnar sem fæli í sér höfnun, fordóma og einmana­leika.

Í færslu sinni byrjar Hörður á persónu­legum orðum til Megasar.

„Ef allt hefði farið eins og stefnt var að sætum við saman að spjalli nákvæmlega núna. En þú kvaddir í gærkvöldi og kemur ekki aftur.“

Hann segir þá hafa verið fermingar­bræður, jafnaldra og vini um áratuga­skeið og að þeir hafi deilt reynslu af því að verða áberandi í samfélaginu.

„Við lærðum fljótlega að frægðin er tvíbent. Hún gat opnað dyr sem áður voru lokaðar, en hún gat líka gert mann berskjaldaðan.“

Hörður segir að þegar fólk verði sýnilegt sé það ekki lengur aðeins dæmt fyrir verk sín heldur einnig fyrir líf sitt, skoðanir og ákvarðanir.

„Það var reynsla sem við báðir þurftum að horfast í augu við - hvor með sínum hætti. Enda varð hún uppspretta nokkurra góðra samtala í gegnum tíðina.“

Í færslunni rifjar hann upp að þeir hafi báðir ákveðið að standa með sjálfum sér fremur en að fela sig.

„Þegar við ákváðum að fela okkur ekki á bak við uppgerðina, heldur standa með sjálfum okkur og sannfæringu okkar, vissum við að einhverjir myndu snúa baki við okkur. En jafnvel þú gast ekki vitað hversu djúp sú höfnun yrði.“

Hann segir þá hafa komist að þeirri niður­stöðu að auðveldara hefði ef til vill verið að þegja og falla inn í hópinn, en það hefði ekki verið heiðarlegt.

„Frelsið hefur sitt verð. Stundum er það einmana­leiki. Stundum missir maður vinnu, vini eða öryggis­tilfinningu. En þegar maður hefur einu sinni ákveðið að lifa í samræmi við eigin sannfæringu verður erfitt að snúa aftur til þess sem maður veit að er ósatt.“

Undir lok færslunnar þakkar Hörður vini sínum fyrir samfylgdina og þau sjónar­horn sem hann færði fólki.

„Kæri Magnús Þór, Megas. Takk fyrir samfylgdina, vináttuna, öll samtölin og öll þau óvæntu sjónar­horn sem þú færðir okkur sem fengum að fylgja þér.“

Að lokum sendir hann fjöl­skyldu og aðstand­endum Megasar innilegar samúðar­kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.

Séra Hjalti Þorkelsson er fallinn frá

„Guðjón var með ótrúlega áru og persónu­töfra“

Guðjón Þórðarson er fallinn frá