Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Forsíða með Kim Kardashian gerir allt vitlaust

||
||

Raun­veruleika­stjarnan Kim Kardashian prýðir forsíðu nýjasta heftis indverska Vogue. Stjarnan deildi mynd af forsíðunni í vikunni en það eru ekki allir sáttir við að hún prýði téða forsíðu.

Forsíðan á ind­verska Vogue.

„Það eru svo margar GULLFALLEGAR, indverskar konur sem gætu verið á forsíðunni á indverska Vogue en þið setjið Kim Kardashian á hana. Árið 2018. Úff,” skrifar einn Twitter-notandi og annar tekur í sama streng:

„Hvenær mun indverska Vogue læra að Indverjar, sérstak­lega ungar, indverskar stúlkur, vilja sjá fleiri andlit sem þær geta tengt við? Við sjáum nóg af Kardashian/Jenner-fjöl­skyldunni út um allan heim. Af hverju ekki að nota indverskar fyrir­sætur?”

Sumir skilja ekki hatrið

Kim í lehenga.

Á einni myndinni í tíma­ritinu er Kim í lehenga, sem er hefð­bundið, indverskt pils með útsaum. Það fer einnig fyrir brjóstið á fólki.

„Hmm, Kim K fyrir indverska Vogue? Í lehenga?” skrifar einn tístari, á meðan aðrir verja þessa ákvörðun tíma­ritsins.

„Ég skil ekki þetta hatur í garð indverska Vogue að hafa alþjóð­lega manneskju á forsíðunni í viðskipta­legum tilgangi endrum og eins. Það þýðir ekki að þeir kunni ekki að meta indverskar eða asískar konur,” skrifar einn notandi á Twitter.

„Fólk sem er að agnúast út í indverska Vogue fyrir að velja alþjóðlegar forsíðu­fyrirsætur endrum og eins skilur ekki hvernig tímarita­bransinn virkar,” skrifar annar.

Fetar í fótspor systu

Svipuð viðbrögð urðu fyrir rétt um ári síðan þegar systir Kim, Kendall Jenner, prýddi forsíðu blaðsins. Þá gáfu forsvars­menn tíma­ritsins út yfir­lýsingu á Instagram þar sem þeir vörðu þetta val sitt á forsíðu­fyrirsætu.

„Á síðustu tíu árum hafa aðeins tólf alþjóð­legir einstaklingar verið á forsíðunni, þar á meðal Kendall Jenner árið 2017. Þess vegna eru níutíu prósent af forsíðu­fyrir­sætunum okkar indverskar! Og við erum stolt af því.”

Kim Kardashian hefur ekki enn tjáð sig um þetta hitamál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall