Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Jón gagnrýndur í þinginu vegna ummæla um flóttafólk: „Þessi málflutningur er með öllu óboðlegur“

Nokkrir þingmenn stjórnar­andstöðunnar voru harðorðir í garð Jóns Gunnars­sonar, dómsmála­ráðherra, á Alþingi í gær og í dag. Var það vegna ummæla hans um stöðu í móttöku og málefnum flótta­fólks á Íslandi, í samhengi við væntanlega móttöku flótta­manna frá Úkraínu.

„Þessi málflutningur er með öllu óboðlegur,“ sagði Helga Vala Helga­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, á þing­fundinum í gær. Átti hún þar við ummæli sem dómsmála­ráðherra viðhafði á dögunum um að flótta­fólk sem hér væri statt og neitaði að gangast undir PCR próf myndi hugsanlega teppa móttöku úkraínskra flótta­manna.

Helga Vala sagði að með þessu væri dómsmála­ráðherra að stilla upp hópum, hvorum á móti öðrum. „Stuðning við flótta­fólk frá Úkraínu má ekki nota til þess að grafa undan öðru flótta­fólki sem einnig hefur flúið neyð. Jafnvel sömu neyð, þótt það kunni að vera annarrar trúar eða af öðrum kynþætti.“

Nýtt útlendingafrumvarp 

Jón boðaði síðan nýtt útlendinga­frumvarp í morgun­útvarpi Rásar 2 í morgun. Sagði hann að von væri til að frum­varpið myndi „leysa þau brýnu mál“ og átti þar við móttöku flótta­fólks vegna stríðsins í Úkraínu.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, sagði á þingfundi í dag að það væri „ógeðslegt“ af dómsmálaráðgerra að ætla sér að nota stríðið í Úkraínu sem afsökun til að vísa öðrum flótta­mönnum á götuna í Grikk­landi. Ástandið í málefnum og aðbúnaði flótta­manna í Grikk­landi er sagt í miklum ólestri og hefur verið um langa hríð.

Jón Gunnarsson sagði að neyðar­ástand ríkti hjá Útlendinga­stofnun. Hann fullyrti einnig að mörg lönd hefðu áhyggjur af því að fólk sem „hefði ekki heilindin með sér“ væri að „nota þetta tækifæri til að komast inn í Evrópu.“

Sjálfstæðisflokkurinn með dagskrárvald

Dómsmála­ráðherra hefur verið harðlega gagn­rýndur fyrir ummæli sín úr ýmsum áttum. Á þing­fundinum í morgun tóku þau Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingmaður Pírata, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, undir orð Andrésar Inga.

Þórhildur Sunna sagði til að mynda að Jón ætti að gæta orða sinna áður en hann egndi viðkvæmum hópum upp á móti hver öðrum. Logi Einarsson sagði að Sjálfstæðis­flokkurinn hefði algjört dagskrár­vald í þessum mála­flokki. Ef frum­varpið kæmist í gegn væri það á ábyrgð Framsóknar­flokksins og Vinstri grænna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá