Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Skýrsla RKÍ – Endursending barna til Grikklands er í bága við lög: „Búseta á götunni bíður þeirra“

Atli Viðar Thor­sten­sen, sviðsstjóri hjálp­ar- og mannúðarsviðs Rauða kross­ins. Ljós­mynd/​Rauði kross­inn
Atli Viðar Thor­sten­sen, sviðs­stjóri hjálp­ar- og mann­úð­ar­sviðs Rauða kross­ins. Ljós­mynd/​Rauði kross­inn

Samkvæmt nýrri skýrslu Rauða kross Íslands bíður flótta­börnum sem vísað er til Grikk­lands líf sem er engu barni bjóðandi og að endur­sending til Grikk­lands gangi gegn hagsmunum flótta­barna; brjóti þar með í bága við lög.

Samkvæmt áður­nefndri skýrslu hefur flótta­fólk í Grikk­landi afar takmarkað aðgengi að húsnæði; heilbrigðis­þjónustu –  menntun; félagslegri aðstoð sem og vinnu.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra

Eins og lands­mönnum ætti að vera kunnugt um þá fyrir­hugar, og hefur lagt fram frumvarp þess efnis á alþingi, Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra að vísa um 300 hælis­leitendum úr landi; nú þegar brott­vísanir eru að hefjast á ný eftir langt hlé vegna heims­faraldursins.

Komið hefur fram að flestir þeirra sem vísa á burt úr landinu verða sendir til Grikk­lands, og þar eru barna­fjölskyldur ekki undan­skildar.

Samkvæmt lögum er íslenskum stjórn­völdum skylt að hafa hagsmuni barna í fyrirrúmi og í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þeirra.

Sviðs­stjóri hjá Rauða krossinum, Atli Viðar Thorstensen, sagði í samtali við RÚV að hann telji að endur­sending flótta­barna til Grikk­lands geti varla verið í samræmi við lög; en í Grikk­landi er heilsu flótta­barna og velferð mjög svo ábótavant: Yfir­gnæfandi líkur eru á að börnin verði heimilis­laus með öllu eða búi við alls óviðunandi aðstæður:

Flótta­börn í ömur­legum aðstæðum í Grikk­landi

„Búseta á götunni er það sem að bíður þeirra oft á tíðum og aðgengi að menntun er verulega skert, þannig að við teljum það sannarlega ekki þjóna hagsmunum barna.“

Samkvæmt því sem Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra sagði í viðtali í Morgun­útvarpinu á Rás 2 í nýlega, að fólk sem fái alþjóð­lega vernd á Grikk­landi búi við sömu skilyrði og Grikkir:

„Það getur farið inn á vinnu­markaðinn, það býr við sömu aðstæður og Grikkir búa við,“ sagði dómsmála­ráðherra.

Rík­is­stjórn Íslands árið 2022 ætlar að senda fjölda barna í hræði­legar aðstæður í Grikk­landi

Atli Viðar segir þetta kolrangt hjá Jóni:

„Ekki samkvæmt okkar mati og ekki samkvæmt áreiðanlegum skýrslum um ástandið í Grikk­landi, og ekki í samræmi við frásagnir þeirra sem hafa komið hingað frá Grikk­landi.“

Og bætir við:

„Þannig að við getum alveg hafnað því að staða flótta­fólks á Grikk­landi sé jafnfætis hinum almenna Grikkja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá