Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Neytendasamtökin vara við sjö fyrirtækjum: „Þangað til verða þau í skammarkróknum“

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

Neytenda­samtökin vara neytendur við sjö fyrir­tækjum í tilkynningu á vefsíðu samtak­anna í dag. Ástæðan er að umrædd fyrirtæki hafa valið að hlíta ekki úrskurðum Kæru­nefndar vöru- og þjónustu­kaupa þegar nefndin hefur úrskurðað neytendum í vil í ágreinings­málum.

Kærunefnd vöru- og þjónustu­kaupa tekur á kvörtunum neytenda í garð seljenda. Hún er skipuð fulltrúum atvinnu­lífsins, neytenda og ráðuneytis.

„Á undan­förnum tveimur árum hefur nefndin úrskurðað í vel á annað hundrað málum, þar af neytendum í vil að hluta eða að fullu í 65 málum,“ segir í tilkynningunni.

Neytendur ekki lagt á sig dómstólaleiðina

Þessi sjö fyrirtæki sem Neytenda­samtökin vara nú neytendur landsins við eiga það sameiginlegt að hafa ekki unað úrskurðum nefndarinnar í kærumálum neytenda. Í flestum tilvikum er um of lága upphæð að ræða til þess að neytendur fari með málin fyrir dómstóla, „þrátt fyrir að þau ynnust að líkindum.“ Í tilkynningunni segir að upphæðirnar séu allt frá nokkrum tugum þúsunda upp í fáein hundruð þúsunda.

Fyrir­tækin sem um ræðir eru:

Ferða­skrifstofa Íslands ehf.

Ormsson ehf.

CC Bílaleiga ehf.

Matfasteigna ehf.

Geri Allt slf.

Camper Iceland ehf.

GC ehf.

Hugsanlega tilefni til að koma á smákrafnarétti

Í tilkynningunni er því velt upp hvort ekki sé tilefni til þess að koma á smákrafna­rétti (e. Small Claims Court) á Íslandi, „sem fyrirtæki yrðu að hlíta, eða auðvelda fólki að sækja rétt sinn á annan hátt.“

Nöfn fyrir­tækja sem ekki hafa unað úrskurði nefndarinnar eru birt á lista Neytenda­samtakanna í eitt ár en eftir það hverfa þau af honum.

„Samtökin hvetja forsvars­menn fyrir­tækjanna að fara tafar­laust að úrskurðum kæru­nefndarinnar. Þangað til verða þau í skammar­króknum,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá