Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Loksins fær heimurinn að vita nafn dóttur Ed Sheeran – Heitir eftir plánetu í Vetrarbrautinni

Ed og Cherry
Ed og Cherry Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ed Sheeran hefur loksins sagt heiminum hvað yngri dóttir hans heitir, næstum því ári eftir fæðingu hennar.

Ein skærasta stjarna veraldar, Ed Sheeran eignaðist aðra dóttur fyrir 10 mánuðum síðan með eiginkonu sinni, Cherry Seaborn. En það var ekki fyrr en núna sem heimurinn fær að vita nafn seinni dótturinnar. Nafnið er Jupiter en fyrir áttu þau systurina Lyra Antarctica Seaborn Sheeran, sem er tveggja ára.

Frá þessu segir E News! en þar kemur fram að fréttin af nafni dótturinnar komi nokkrum vikum eftir að Ed sagði frá því að eiginkona hans, Cherry, hafi greinst með krabbameins­æxli er hún bar Jupiter undir belti, æxli sem ekki var hægt að fjarlægja fyrr en eftir barns­burðinn. Í viðtali við Rolling Stone tónlistar­blaðið sagði söngvarinn að þau Cherry hefðu íhugað að koma Jupiter fyrr í heiminn en áætlað var en á endanum hafi hún þó gengið með stúlkuna heila meðgöngu. Cherry gekkst svo undir vel heppnaða skurð­aðgerð í júní 2022.

„Það er ekkert sem þú getur gert við þessu,“ rifjaði Ed upp í viðtalinu. „Þú ert svo hjálpar­laus.“

Þetta tímabil í lífi Ed versnaði enn er besti vinur hans, Jamal Edwards lést í febrúar 2022, aðeins 31 árs gamall. Sama mánuð þurfti söngvarinn að fara fyrir dóm vegna ásökunar um lagastuld vegna slagarans Shape of You sem hann gaf út árið 2017. Þrátt fyrir að hann vann málið, versnaði andleg heilsa hans til muna, vegna alls sem á undan hafði gengið.

„Ég spíralaðist í gegnum ótta, þunglyndi og kvíða,“ sagði söngvarinn í tilkynningu 1. mars. „Mér leið eins og ég væri að drukkna, með hausinn undir yfir­borðinu, horfandi upp án þess að geta komist á yfir­borðið til að anda.“

Ed miðlaði þessari tilfinningu inn á væntanlega plötu sína sem ber heitið – (borið fram Substract). Plötuna kallar hann „dagbókar­færslu“ um reynslu sína á þessum erfiðu tímum og bætir við að verkið sé hans berskjaldaðasta hingað til.

„Sem lista­manni fannst mér ég ekki á trúverðugan hátt geta sett verk í heiminn sem sýndi ekki nákvæmlega hvar ég er og hvernig ég þarf að tjá mig á þessum tíma­punkti í lífi mínu,“ útskýrði Ed. „Þessi plata er nákvæmlega það. Hún opnar fallhurð inn í sálu mína. Í fyrsta skipti er ég ekki að gera plötu sem ég held að fólk mun líka við. Ég er einfald­lega að gera eitthvað sem er heiðarlegt og satt um það hvar ég er staddur í mínu fullorðins­lífi.“

Platan – (Subtract) kemur út á streymis­veitur 5. maí næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt