Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Anna sér fram á bjartari tíma í tvennum skilningi: „Ég er orðin leið á síðbuxum og flíspeysu“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Kristjáns­dóttir sér fram á bjartari tíma á Tenerife, í tvennum skilningi.

Hin bráð­fyndna Anna Kristjáns­dóttir birtir dagbókar­færslur sínar frá Tenerife, eða Paradís eins og hún kallar eyjuna, á Facebook en þær njóta gríðarlegra vinsælda enda fyndnar og fræðandi. Í nýjustu færslunni sem birtist í dag sér hún fram á bjartari tíma. Bæði vegna hækkandi hitastigs, sem þó er töf á og vegna þess að nú á loksins að byggja nýtt hótel nærri Los Cristianos.

„Dagur 1303 – Loksins, loksins.

Það bárust fregnir af því í gær að HG hótelin (sem reka HG Tenerife sur og HG Cristian sur) væru að undirbúa byggingu á nýju 200 herbergja hóteli á óbyggða svæðinu á milli Los Cristianos og hrað­brautarinnar. Ekki veitir af, en samkvæmt skipulagi Arónahrepps er gert ráð fyrir mikilli hótel og íbúða­byggð á svæðinu. Það hefur ekkert verið byggt hér í mörg ár sem veldur því að húsnæðis­skortur er viðvarandi og það litla sem er til sölu fer á íslensku verðlagi sem er, eins og við vitum öll, glæpsamlegt.Þannig er lítil íbúð til sölu hér í íbúða­kjarnanum og það er sett á hana 230.000€. Jafnvel ég ætti erfitt með að stað­greiða hana, nema þá með því að selja hana Mjall­hvíti mína og skrapa saman öllu mínu sparifé til útborgunar. Höfum samt í huga að umrædd íbúð er óeinangruð, engir ofnar né loft­kæling, litlar svalir og íbúðin sjálf mjög lítil, einungis eitt svefn­herbergi og lítil stofa með eldhús­krók. Sjálf væri ég ekki tilbúin að greiða fyrir hana meira en 100.000€, hvað þá uppsett verð.Fyrir bragðið sé ég fram á bjartari tíma þegar uppbygging hefst á auða svæðinu á milli þétt­býlisins í Los Cristianos og hrað­brautarinnar. Eins og sjá má af meðfylgjandi korti er nóg bygginga­land norðan við Avenida de Chayofita og að hrað­brautinni TF-1, göturnar tilbúnar og malbikaðar og komin götu­lýsing, en það vantar bara húsin. Auk þessa svæðis er einnig nóg af óbyggðum lóðum við ströndina austast í byggðinni.

Það er ekki þar með sagt að ég hafi þolinmæði að bíða eftir nýjum íbúða­húsum sem vafalaust mun valda lækkun á íbúða­verði á svæðinu þegar húsin byrja að byggjast, hvenær sem það verður.“

Í lokakafla færslunnar snýr Anna sér að veðrinu eins og svo oft áður. Segist hún vera orðin þreytt á síðbuxum og flíspeysu, enda aðeins um 21 gráðu hiti. En von er á hækkandi hitastigi þó töf sé á því í bili.

„Ég var búin að spá talverðri hækkun á hitastigi í Paradís næstu dagana. Nú er ljóst að þetta mun frestast örlítið, vonum að það gerist ekki seinna en á fimmtudag, þ.e. á morgun. Ég er orðin leið á síðbuxum og flíspeysu. Einhver nefndi að á Stóra hundi væri hitinn 26-28°C. Samkvæmt sömu mælingum og ég hefi fyrir Los Cristianos, sýndi mælingin fyrir Maspalomas einungis 21°C á sama tíma.Við sem hugsum alltaf kassalaga, tökum einungis mark á mælum sem eru stað­settir 10 metra frá næsta mannvirki og í tveggja metra hæð frá jörðu og samt í skugga, semsagt veðurstofu­mælingum og við hlæjum að apóteks­mælum sem sýna Selfoss­gráður.Ég elska ykkur samt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt