Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Guðrún Aspelund, verðandi sóttvarnalæknir: Það eru ýmsir steinar í götunni sem þarf að velta frá

„Þessu starfi fylgir mikil ábyrgð og þetta eru stór spor að fara í, að fylgja á eftir Þórólfi; ég geri mér grein fyrir því. En vonandi verður ekki sama ástandið áfram eins og undan­farin tvö ár,“ segir Guðrún Aspelund sem ráðin hefur verið nýr sóttvarna­læknir frá og með 1. september. Guðrún starfar sem yfir­læknir á sviði sóttvarna hjá embætti land­læknis. „Ég vona að ég standi mig vel þegar ég tek við af Þórólfi sem er búinn að vera frábær í þessu starfi og hann er ekkert farinn enn; ég vona að ég hafi aðgang að honum áfram og fái góð ráð en annars hlakka ég til að byrja.“

Innlögnum og þeim sem greinast með Covid er að fjölga. Hvaða augum lítur Guðrún ástandið í dag?

Örv­un­ar­bólu­setn­ing kemur í veg fyrir alvar­leg veik­indi hjá þessum hópum.

„Við erum að fylgjast vel með því, sérstak­lega spítala­innlögnum og alvarlegum veikindum. Þetta er ekki alveg nógu gott en aðgerðirnar núna miðast fyrst og fremst að því að reyna að hvetja til bólu­setningar og auka þátttöku sérstak­lega þeirra sem eru aldraðir eða viðkvæmir,“ segir Guðrún en nú er farið að bjóða upp á fjórðu sprautuna. „Við ráðleggjum sérstak­lega þeim að fara í fjórðu sprautuna sem eru viðkvæmir og þá á ég við aldraða – sérstak­lega þá sem eru áttræðir og eldri – og yngra fólk sem er með undir­liggjandi áhættu­þætti og þeim sem eru ónæmis­bældir af ýmsum ástæðum. Þetta er fólkið sem hefur sýnt sig að er aðallega að leggjast inn á spítala og verða alvarlega veikt. Rann­sóknir hafa sýnt að örvunar­bólusetning kemur í veg fyrir alvarleg veikindi hjá þessum hópum. Það er því miður þannig að ónæmis­svarið eftir bólu­setningu dvínar á nokkrum mánuðum og þess vegna erum við að hvetja til þess að sérstak­lega þetta fólk fari í örvunar­bólu­setningu. Varðandi aðra þá er ekki átak í gangi en hins vegar má fólk fara í fjórðu sprautuna ef það vill. Það á ekki að vera nein hindrun fyrir þá sem vilja að fara í örvunar­bólu­setningu og það er til nóg af bóluefni en ágóðinn fyrir þá er ef til vill minni.“

Fjölbreytt starfsemi

Guðrún tekur formlega við sem sóttvarna­læknir 1. september eins og þegar hefur komið fram. Hver eru helstu verkefni sóttvarna­læknis?

Núna erum við sér­stak­lega að gera upp Covid-19 tím­ann.

„Það eru þessi verkefni tengd Covid-19 og síðan eru bólu­setningar almennt stór þáttur í starfsemi okkar. Núna erum við sérstak­lega að gera upp Covid-19 tímann – þó faraldurinn sé ekki búinn – en það má segja að nú séu ákveðin kafla­skipti og við höfum áhuga á að fara yfir það, svo sem hvað var vel gert og hvað hefði ef til vill mátt gera á annan hátt. Við þurfum að uppfæra viðbragðs­áætlanir og huga að neyðar­birgðum hlífðar­búnaðar og lyfja. Þá er ýmis vöktun stór hluti af okkar starfi; fylgjast með hvaða sjúkdómar eru í gangi, hver tíðni þeirra er og hvort það séu einhver frávik frá því sem verið hefur áður og ef svo er þá hvers vegna. Við fylgjumst líka með notkun á sýkla­lyfjum og þá til þess að reyna að sporna við sýklalyfja­ónæmi sem er vaxandi vandamál í heiminum. Síðan höfum við hlutverk í ýmiss konar fræðslu, upplýsinga­gjöf og forvarnar­starfi; það er líka hlutverk sóttvarna­læknis. Þannig að þetta eru allt verkefni sem við munum halda áfram með. Síðan hefur verið mikið samstarf við alþjóða­stofnanir og það er heldur að aukast ef eitthvað er og þá tengist það aðallega hinum Norður­löndunum, öðrum Evrópu­löndum og svo Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnuninni. Þar sem við tilheyrum Evrópska efnahags­svæðinu þá þurfum við einnig að skila reglulega ýmsum gögnum og skýrslum til Evrópsku sóttvarna­stofnunarinnar. Þetta eru þau helstu verkefni sem eru viðvarandi.“

Yale og Columbia

Guðrún stundaði nám við Mennta­skólann í Reykjavík og raun­greinar heilluðu. Það var á þessum árum sem hún ákvað að fara í læknis­fræði. „Ég hafði ýmsar hugmyndir sem krakki og unglingur um hvað gæti verið spennandi en síðan í mennta­skóla fór ég að hugsa meira um þetta. Ég hafði alltaf gaman af raun­greinum í skóla og endaði svo á að fara í læknis­fræði,“ segir Guðrún sem útskrifaðist frá MR vorið 1990. Hún segir að það sem hafi heillað sig við læknis­fræðina sé sambland af mannlegum þáttum og vísindum. „Ég hafði gaman af stærð­fræði en ég hafði ekki hug á að fara í hreinar vísinda­greinar eins og verkfræði eða efnafræði og mér fannst aðlaðandi að vinna með fólki og læknis­fræði er einnig vísinda­grein og þar voru margir mögu­leikar hvað hægt væri að gera í fram­tíðinni. Mér fannst þetta vera spennandi kostur.“

Guðrún er með emb­ætt­is­próf í lækn­is­fræði frá Háskóla Íslands og sér­fræði­menntun í bæði almennum skurð­lækn­ingum og barna­skurð­lækn­ingum. „Ég fór í sérfræðinám í Banda­ríkjunum og var í Yale-háskóla í Connecticut þar sem ég var í fimm ár í námi í almennum skurð­lækningum og svo í tvö ár við rann­sóknir. Svo fór ég til Toronto í Kanada þar sem ég var í sérfræði­námi í tvö ár barna­skurð­lækningum við Hospital for Sick Children. Eftir það fór ég til New York þar sem ég bjó og starfaði í 10 ár.“ Guðrún var lektor og barna­skurð­læknir við Col­umbi­a-há­skóla frá 2007 til 2017.

Mér fannst spenn­andi að takast á við eitt­hvað nýtt.

„Ég flutti frá New York til London árið 2018 en maðurinn minn, Gunnar Jakobsson, hafði unnið í rúm 20 ár í banka í New York og var beðinn um að taka að sér starf fyrir bankann í London og við ákváðum í sameiningu að flytja. Það er þannig í læknis­fræðinni að maður getur ekki byrjað að vinna einn, tveir og þrír í nýju landi; það þarf að fá leyfi sem tekur sinn tíma. Ég sótti um leyfi og fékk það á endanum en á meðan ég var að hugsa minn gang nokkrum mánuðum eftir að ég flutti til London var auglýst starf hjá embætti land­læknis. Mér fannst spennandi að takast á við eitthvað nýtt svo í staðinn fyrir að fara að vinna sem skurð­læknir í nýju landi og byrja þar upp á nýtt ákvað ég að gera eitthvað allt annað en vera samt í læknis­fræðinni og hjálpa fólki varðandi lýðheilsu.“

Guðrún byrjaði að vinna hjá sóttvarna­lækni árið 2019; fyrst í fjarvinnu en hún kom þá til landsins einu sinni í mánuði og flutti fjöl­skyldan svo alfarið til landsins í mars 2020 en Gunnar hafði þegið starf hjá Seðla­banka Íslands sem vara­seðla­bankastjóri.

Hjónin eiga tvær dætur sem eru að verða 13 og 16 ára.

Lífið utan vinnu

Hvað með lífið þegar vinnunni sleppir? Hvað með áhugamál og lífs­stílinn?

„Mér finnst gaman að útiveru. Mér finnst skemmtilegt á skíðum; bæði á göngu­skíðum og svig­skíðum. Svo hef ég verið svolítið að hlaupa. Ég hef líka gaman af því að teikna og fór í Myndlistar­skólann í Reykjavík í fyrra í öllum þessum látum einnig til að gera eitthvað rólegt fyrir sjálfa mig.“ Hver er stíllinn hjá lækninum sem hefur haft gaman af að teikna frá því á æsku­árunum? „Blýantsteikningar og uppstillingar. Skuggar og form. Mér finnst þetta mjög afslapp­andi og eitthvað sem ég hef fyrir mig.“

Lífið er ekk­ert auð­velt.

Skuggar og form. Stundum liggur skuggi yfir.

Starfið hefur mótað lækninn og nefnir Guðrún sérstak­lega þegar hún starfaði sem skurð­læknir á stórum sjúkra­húsum þar sem vinnan og álagið var jafnan mikið. „Ég hef unnið með börnum og útkoman er yfirleitt góð en auðvitað gerist ýmislegt og það er alltaf átakanlegt og sérstak­lega þegar um lítil börn er að ræða. Maður skilur stundum ekki hvernig fólk kemst í gegnum það. En fólk er ótrúlega seigt og hefur einhvern veginn mikinn vilja og getu til að halda áfram. Það er engin formúla fyrir því. Lífið er ekkert auðvelt. Maður verður að átta sig á því. Það kemur ýmislegt upp og það eru alls konar erfið­leikar. Maður getur ekki ætlast til þess að allt sé tóm hamingja. Það eru ýmsir steinar í götunni sem þarf að velta frá og þannig er bara lífið. Maður verður að taka því sem kemur og gera sitt besta til að vera sáttur við sjálfan sig.“

Guðrún talar um móður­hlutverkið. „Það er einstakt; mikil ábyrgð en mikil gleði sem gefur manni auðvitað mikið en breytir lífi manns.“

Hún nefnir enn eitt sem hefur valdið ákveðnum þátta­skilum í lífi sínu en það er að móðir hennar lést í fyrra. „Það var eitthvað sem slær mann sama hvenær það gerist held ég þegar það er einhver þér nákominn. Það var ákveðin reynsla.“

Hvað vill læknirinn segja um sorgina? „Auðvitað reynir maður að vinna með sorgina; halda áfram góðum samskiptum við fjöl­skylduna. Svo getur maður yljað sér við góðar minningar. Ég er þakklát fyrir hvað við áttum mömmu lengi og að við höfum pabba enn. Þannig að maður reynir að taka þetta á þeim jákvæðu nótum.“

Hvað vill Guðrún ráðleggja þeim sem eru að ganga í gegnum sorg? „Ég held það sé gott að tala við fólk; ekki byrgja þetta inni og láta þetta verða að einhverjum snjóbolta sem stækkar. Svo held ég að það sé mikilvægt að halda áfram að njóta lífsins. Ég held að þeir sem maður saknar myndu ekki vilja að við hættum því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá